8. janúar 2011

Fantasían ryður sér til rúms

Emil Hjörvar Petersen hafði gefið út tvær ljóðabækur við góðan orðstír þegar hann sneri sér að fantasíuskáldskap. Hann hlaut Nýræktarstyrk Bókmenntasjóðs árið 2008 fyrir ljóðabók sína Refur, og tveimur árum síðar gaf hann út fantasíuna Sögu eftirlifenda – Höður og Baldur, fyrsta bindið í fantasíuþríleik sem kom út hjá Nykri um haustið 2010. Þar með var Emil Hjörvar kominn í hóp brautryðjenda, því lítið hafði kveðið að fantasíuskrifum á Íslandi fram að því.

 

Saga eftirlifenda fjallar um æsina og bræðurna Höð og Baldur – þann blinda og þann hvíta. Atburðarásin á sér stað 7010 árum eftir Ragnarök, og hefst í nokkurs konar hliðstæðri útgáfu af Íslandi og miðausturlöndum nútímans. Brátt fer sagan þó að teygja anga sína víðar.

 

Smellið hér til að lesa alla greinina á Sögueyjunni Ísland, sagenhaftes-island.is.


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur. 

Meira
Sjálfstætt ljóðaslamm 2011

Fjórða ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið á Safnanótt, föstudaginn 11. febrúar 2011. Að þessu sinni er þemað ‚sjálfstæði.’ 

...
 
Aukasýningar á Munaðarlaus

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...