8. september 2010 (1 lesandi hefur sagt álit sitt.)
Aldrei nein vissa
Árið 2004 kvaddi kornung skáldkona sér eftirminnilega hljóðs með áleitinni og ofskynjunarkenndri frásögn af stúlku sem var „föl sökum inniveru, einræn sökum einveru inniveru,“ bjó í blokkaríbúð með dreng að nafni Kalvin og átti nágranna sem var „ógeðslegur skratti sem sendir illsku yfir til okkar með rafeindabúnaði.“
Gagnrýnendur voru hrifnir þessu myrka en undarlega kímna verki: „Kraftmikil fyrsta bók,“ sagði Morgunblaðið, og Fréttablaðið tók í svipaðan streng: „Það er kraftur í þessari yfirlætislausu bók.“
Bókin, sem sveif einhvernveginn mitt á milli ljóðsins og smásögunnar, hét Kjötbærinn, og skáldkonan unga var Kristín Eiríksdóttir. Hún hefur síðan þá sent frá sér tvær ljóðabækur, Húðlita auðnina(2006) og Annarskonar sælu (2008), sem festu hana í sessi sem einn af eftirtektarverðustu höfundum landsins, og í október 2010 er væntanlegt frá JPV smásagnasafn sem bera mun titilinn Doris deyr.
but to fully utilize the advantages of self-paced learning, you need to go through concise and up-to-date PDF Microsoft 70-642
exam questions, ebooks and assessment tools like practice test. 70-27070-665
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur.
Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...