29. október 2010

Skrímsli við rétt hitastig

„Hver myndabók þarf að hafa rétt hitastig, réttu stemmninguna,“ segir Áslaug Jónsdóttir rithöfundur og myndlistarmaður.

Á borðstofuborðinu heima hjá henni vestur við Melhaga, liggja þrjár útgáfur af sömu bókinni. Þetta er nýjasta skrímslabókin, á íslensku, sænsku og færeysku, ilmandi beint úr prentsmiðjunni.

„Flott, bara komnar strax þýðingar af nýju bókinni,“ segi ég. „Nei, þetta eru ekki þýðingar, þær koma út á sama tíma á þremur tungumálum. Og þótt þetta sé sama sagan, þá eru textarnir í bókunum ekki nákvæmlega eins.“

 

Nýjasta skrímslabókin, Skrímsli á toppnum, er sú sjötta í röðinni eftir Áslaugu og hina höfundana tvo, Kalle Guettler frá Svíþjóð og Rakel Helmisdal frá Færeyjum. Sú fyrsta kom út árið 2004. Áslaug hefur svo sjálf skrifað og teiknað sínar eigin myndabækur síðustu tíu ár. Sagan Gott kvöld varð að vinsælu barnaleikriti í Þjóðleikhúsinu 2005. Nú er hún að skrifa nýtt leikrit uppúr þessum sex skrímslasögum.

 

Smellið hér til að lesa alla greinina á Sögueyjunni Ísland, sagenhaftes-island.is.

 

Hér má svo sjá enska útgáfu greinarinnar.

 

Þorsteinn J.


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur. 

Meira
Sjálfstætt ljóðaslamm 2011

Fjórða ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið á Safnanótt, föstudaginn 11. febrúar 2011. Að þessu sinni er þemað ‚sjálfstæði.’ 

...
 
Aukasýningar á Munaðarlaus

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...