15. október 2007 14:44 |
Þegar skipt er um ham |
Venjuleg fjölskylda vaknar til lífsins að morgni. Hreyfingar hennar á þessum tíma dags eru allar hinar formföstustu og sjálfsprottnustu, svo sem dagblaðalestur föðurins og astmakast móðurinnar. Aðeins eitt er ekki eins og það á vera: sonurinn, Gregor Samsa, hefur enn ekki látið sjá sig. Yfir hefðbundinni stofu millistéttarfjölskyldunnar grúfir myrkvað herbergi hans. Þegar ljósinu er á það brugðið kemur í ljós að það hefur tekið stökkbreytingu: Gólfið er orðið að vegg sem Gregor er ekki lengur fær um að ganga á. Þess í stað spriklar hann með dýrslegum hætti, skelkaður yfir þessum umskiptum, milli flatanna í herberginu. Gregor Samsa er orðinn að pöddu.
Með þessum hætti hefst leikgerð leikhópsins Vesturport á sögu Franz Kafka, Hamskiptunum, sem frumsýnd var í Þjóðleikhúsinu í septemberlok. Undirritaður bauðst til þess að skrifa leikdóm um sýninguna en reyndist það ögn erfitt vegna þess hversu fátt er út á hana vera að setja. Ólíkt því sem ég hafði heyrt um uppsetningu sama hóps á Wojzeck nær umgjörðin ekki of langt út yfir efnið, heldur er framsetning verksins viðeigandi og smekkleg. Mér dettur ekkert í hug sem ég þyrfti að koma leikendum, leikstjóra og öðrum aðstandendum til skila um hvað þeir þyrftu að bæta. Leikmyndin byggir á brilljant einfaldri lausn og tónlistin áreynslulítið gutl sem þvælist sjaldnast fyrir. |
meira... |
| |
29. maí 2007 17:47 |
Djasstríó E.S.T á Listahátíð |
Tónleikar djasstríós Esbjörns Svenssonar, eða Trio E.S.T., sem haldnir voru á Nasa á vegum Listahátíðar um helgina, freistuðu margs áhugafólks um djassaða tónlist. Tónleikarnir á föstudaginn voru þéttir, sléttir, tærir, glæsilegir og að sjálfsögðu engar feilnótur í boði. Esbjörn Svensson er glæsilegur píanisti, trommuleikarinn Magnus Öström augljóslega mikill snillingur og bassaleikarinn Dan Berglund algjörlega á réttri hillu í lífinu. Mig langar að nota frasann „fullkominn tónlistarflutningur“ þótt sú klisja sé sjálfsagt svo ofnotuð að hún sé merkingarlaus.
|
meira... |
| |
25. maí 2007 09:58 |
Í gyðjufaðmi |
Hvað rúmar eitt skip? Getur það rúmað konu eða jafnvel fimm gyðjur eða fleiri? Það getur verið notalegt að láta veröldina ramma sig inn öðru hverju og ekki er verra að fá til þess varðskip og heilan her af skapandi fólki. Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur er frumkrafturinn í sýningunni Gyðjan í vélinni sem fer fram í varðskipinu Óðni í Reykjavíkurhöfn, þar er tekið í höndina á sögunni og hatturinn fer ofan fyrir konum og gyðjum í þeim.
|
meira... |
| |
27. apríl 2007 14:58 |
Rassaköst í kartöflugeymslu |
Á ákveðnum aldri verða flest mannanna börn heltekin af hugmyndinni um rassa og ýmsar afurðir þeim tengdum. Þetta er á sumum heimilum kennt við „kúk og piss-skeiðið“ og varir mislengi. Með hæfilegri blöndu af tepruskap og siðprýði næst yfirleitt að bæla niður þessa hrifningu unga fólksins fyrir fermingaraldurinn en þá hafa líka flestir fengið meiri áhuga á öðrum svæðum.
|
meira... |
| |
12. apríl 2007 17:12 |
Ævintýri á gönguför |
Um söngleikinn Lífið - notkunarreglur |
Þegar ég var lítil stelpa fór ég stundum niður í kjallara að skoða þar dót sem ekki var lengur í notkun en móðir mín hafði fundið stað ofan í kössum. Eitt af því sem heillaði mig sérstaklega var þykkur vörulisti yfir vélar og tæki sem afi minn hafði átt.
|
meira... |
| |
12. apríl 2007 14:32 |
Hlegið á kostnað feðraveldis |
Um söngleikinn Leg |
Nýjasta afkvæmi Hugleiks Dagssonar, söngleikinn Leg, má nú sjá á stóra sviði Þjóðleikhússins. Flestir ættu að vera farnir að kannast við teiknimyndasögur Hugleiks þar sem svartur húmor ræður ríkjum og engu og engum er hlíft.
|
meira... |
| |
12. apríl 2007 13:51 |
Eilíf hamingja |
eða Image (Ewige Glückseligkeit) frá Berlín |
Það þarf víst ekki að taka það fram að á síðustu misserum hefir Ísland og Íslendingar verið í óða önn við að sigra heiminn. Gildir þá einu á hvaða vettvangi það er, allstaðar er íslenskt að finna.
|
meira... |
| |
27. mars 2007 14:56 |
Ævintýri á gönguför |
Um söngleikinn Lífið - notkunarreglur |
Þegar ég var lítil stelpa fór ég stundum niður í kjallara að skoða þar dót sem ekki var lengur í notkun en móðir mín hafði fundið stað ofan í kössum. Eitt af því sem heillaði mig sérstaklega var þykkur vörulisti yfir vélar og tæki sem afi minn hafði átt. Það var þó ekki listinn sjálfur sem heillaði heldur það sem hann geymdi sem vakti áhugann.
|
meira... |
| |
23. mars 2007 14:56 |
Hlegið á kostnað feðraveldis |
7. mars 2007 14:56 |
Eilíf hamingja |
2. mars 2007 14:56 |
Um „gamanleikritið“ Bar par |
20. febrúar 2007 14:56 |
Klukkustund í óskilum |
31. janúar 2007 14:56 |
Haus í sumarfríi |
13. nóvember 2006 14:56 |
Áhugaverð myndlist |
6. nóvember 2006 14:56 |
Danny and the Deep Blue Sea |
2. nóvember 2006 14:56 |
Æsileg hugmynd en óttaleg vonbrigði |
31. október 2006 14:56 |
Að sýna eða segja frá |
25. september 2006 11:46 |
Hitler, Hitler, Hitler… |
5. júní 2006 11:46 |
Sænskur djass á Listahátíð |
25. maí 2006 11:46 |
Mannlegur ófögnuður |
22. maí 2006 11:46 |
Berfættur maður með banjó |
19. maí 2006 11:45 |
Tríó á hreyfingu |
17. maí 2006 11:45 |
Nú skyldi ég hlæja, væri ég ekki dauður |
15. maí 2006 11:45 |
Kraftmikil byrjun á 20. Listahátíð Reykjavíkur |
eldri fréttir
|