2. desember 2008 09:49

Niðurstigningarsaga Óðins alföður

Stefán Máni er ólíkindatól á íslenskum bókmenntaakri og hefur brotist eftir eigin leiðum í framvarðasveit íslenskra skáldsagnahöfunda. Hann hefur verið óhræddur við tilraunir sem hafa gefist misvel, og með framgöngu og skoðunum hefur hann komið sér fyrir nokkuð afsíðis miðað við lungann af íslenskum rithöfundum. Allt eru þetta ótvíræðir kostir.  

meira...
 

 
10. nóvember 2008 09:05

Síðustu dagar stjórnmálanna!

Forsætisráðherra Íslands, Geir H. Haarde, lýsti því yfir í viðtali í kvöldfréttum Sjónvarpsins hinn 8. nóvember 2008 að ákveðið hefði verið að allir flokkar landsins hefðu með sér samráð um að skipa í bankaráð ríkisbankanna þriggja. Hann orðaði það svo að „ríkisvaldið, stjórnmálin, hefði þurft að skipa í bankaráðin eins og sakir standa, vegna þess að bankarnir eru komnir í eigu ríkisins“. Með öðum orðum, hið pólitíska vald hafi þurft að grípa inn í og ráða í stjórnir bankanna en menn úr öllum flokkum hefðu verið sammála um að fá fagfólk til verksins og víkja sérhagsmunum til hliðar. Hugmyndin sem liggur hér að baki hvílir væntanlega á þeirri hugsun að bráð nauðsyn hafi krafist þess að allir flokkar legðust á eitt til að koma bankakerfinu á flot á ný; pólitískum ágreiningi væri vikið til hliðar og stofnanir flokkanna sem mynda valdastrúktúr samfélagsins tækju höndum saman um ofangreindar aðgerðar.  

meira...
 

 
13. október 2008 15:12

Viðsjárverðir tímar eða endurtekið efni?

Á níunda áratug tuttugustu aldar, á tímum Ronalds Reagans og Margretar Thatchers, áttu sér stað gríðarleg hugmyndafræðileg umskipti. Þetta var tími aukins frjálsræðis; í viðskiptum, í stjórnmálum og í menningalegu tilliti. Gömlu kerfin og hugmyndirnar riðuðu að lokum til falls. Nýfrjálshyggjan svonefnda tók öll völd og leysti sósíalismann og kapítalismann af hólmi. Jafnvel þegar jafnaðarmenn á borð við Blair og Clinton komust til áhrifa fylgdu þeir sömu línu og forverar þeirra – „frelsinu“ var sungið lof og undir tók þjóðakór heimsins. Langflestir voru á einu máli um að fólkinu liði mikið betur, hagur þjóðanna (Vestrænna þjóða) hefði vænkast svo um munaði. Hagtölurnar lugu ekki.  

meira...
 

 
11. október 2008 10:56

Birtan framundan

Það mætti tala um skáldskap, bókmenntalegan texta, eilífðir, tíma og aðrar plánetur en allt í lagi, tölum um kreppu. Allt tengist. Stjórnvöld hyggjast leita til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, ímynd Íslands er ónýt. Rússlandslánið virðist ekki enn úr sögunni en Japanir þrýsta á að Ísland verði fyrsta landið sem IMF kemur að. Það er að segja þegar þetta er skrifað, 10. október 2008.

meira...
 

 
10. október 2008 10:02

Hrunið

Sátt fyrir sannleika og ný hegemónía

Ég hef fylgst með atburðum síðustu daga frá gistiheimili í Jerúsalem, bæði í gegnum íslenskar vefsíður en á síðustu dögum í vaxandi mæli í gegnum sjónvarpsútsendingar BBC og Al-Jazeera. Fólk hér á gistiheimilinu spyr mig hvað sé í gangi; sænskur ferðamaður óttast að missa spariféið sitt sem hann hafði geymt á Kaupþing Edge reikningi og Hollendingar jafnt sem Ungverjar lesa um málið á vefmiðlum í löndum sínum.

meira...
 

 
5. október 2008 13:25

Ljóðvinir fagrir: ungskáld og bókmenntasaga

ádrepa um Tíminn er eins og vatnið – íslensk bókmenntasaga 20. aldar

Ég vil gera alvarlegar athugasemdir við nýja bókmenntasögu tuttugustu aldar sem kennd er í framhaldsskólum í fyrsta sinn nú í vetur, bókina Tíminn er eins og vatnið eftir Brynju Baldursdóttur og Hallfríði Ingimundardóttur, eða í það minnsta þann stutta kafla hennar sem helgaður er ungskáldum samtímans og nefnist „Ljóðvinir fagrir“. 

meira...
 

 
26. september 2008 10:09

Útrás/Innrás

Einræðisherrann sem ætlaði að sigra heiminn sendi flota sinn af stað með öll þau vopn sem til voru í landinu. Flotinn fór út um heimsbyggðina og fáir stóðust áhlaupið. Einræðisherrann brosti breitt. Hann öskraði jafnvel af gleði svo sumum þótti nóg um. Hann sagði að landið sitt væri það besta í heimi og þjóðin sú sterkasta. Kapteinarnir lyftu upp byssustingjunum í fleiri löndum en Einræðisherrann hafði nokkru sinni leyft sér að vona (og var hann þó mikilmennskubrjálaður). Alls staðar varð fólk að láta vopn sín af hendi. Einræðisherrann átti orðið svo mikið af byssustingjum í svo mörgum löndum að hann trúði því varla. Að hugsa sér! 

meira...
 

 
15. september 2008 08:33

Menningarverðmæti

Fréttir bárust af því í dag að Sumarljós og svo kemur nóttin, skáldsaga Jóns Kalmans Stefánssonar, hefði verið valin inn á Bestenlistann. Hve ljúft er ekki að leggja þýska? Við munum öll frækilegan sigur handboltalandsliðsins þann 12. ágúst síðstliðinn. Heimsmeistararnir áttu ekki séns. Á sama hátt gleymum við því líka seint þegar kempurnar okkar Einar Már og Sjón tóku Svíana í bakaríið. Þetta var rúst. 2-0 fyrir okkur. Svíagrýlan er ekki til staðar þegar kemur að bókmenntum, jafnvel þótt Astred sé á miðjunni. 

meira...
 

 
20. maí 2008 16:14

Skjaldborg

14. maí 2008 14:24

Rómantísk eining og lokuð herbergi

24. apríl 2008 15:36

Formbylting ljóða

21. apríl 2008 10:26

Stafræn menning

9. apríl 2008 10:12

Afhoggnar hendur og grýttar konur í Malmö

2. apríl 2008 12:26

Hannes og Háskólinn IV

1. apríl 2008 11:51

Hannes og Háskólinn III

1. apríl 2008 09:19

Hannes og Háskólinn II

31. mars 2008 17:18

Hannes og Háskólinn I

3. mars 2008 16:44

Löndun

26. febrúar 2008 13:54

Stórbreskt íhald

1. febrúar 2008 13:18

Óraskjárinn

15. janúar 2008 09:55

Misskilið sögustríð

14. janúar 2008 14:11

Skopmyndirnar sem afhjúpun sannleikans

4. janúar 2008 14:57

Sögustríðið- ný orrusta

7. nóvember 2007 14:58

Rússneska byltingin 90 ára


eldri fréttir

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur. 

Meira
Sjálfstætt ljóðaslamm 2011

Fjórða ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið á Safnanótt, föstudaginn 11. febrúar 2011. Að þessu sinni er þemað ‚sjálfstæði.’ 

...
 
Aukasýningar á Munaðarlaus

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...