|
|
14. mars 2005 10:52 |
Nýir ritstjórar Kistunnar |
Það var við afar látlausa athöfn, ekki alls fyrir löngu, sem að nýjum ritstjórum voru afhent lyklavöldin að Kistunni. Hinir nýju ritstjórar eru Kviksögukrakkarnir ærslafullu Hilma Gunnarsdóttir og Jón Þór Pétursson. Við viljum þakka fráfarandi ritstjóra Eyjólfi Kristjánssyni fyrir störf hans við Kistuna og fyrir að fóstra Kviksögu. Kistan og Kviksaga munu halda samstarfi sínu áfram og skiptast á efni eftir aðstæðum, hvortveggja vettvangar fyrir frjó skoðanaskipti. Nýir ritstjórar óska eftir áframhaldandi samstarfi við pistlahöfunda Kistunnar og munu gera átak í að virkja fleiri til að láta í ljós gagnrýna skoðun á samtímaumræðunni. Við viljum jafnframt hvetja lesendur Kistunnar að hika ekki við að láta í sér heyra. Takk fyrir.
Hilma Gunnarsdóttir Jón Þór Pétursson
|
Ritstjórn Kistunnar |
Til baka
|
yfirlit frétta
|
|
 |
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur.
Meira
Sjálfstætt ljóðaslamm 2011
Fjórða ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið á Safnanótt, föstudaginn 11. febrúar 2011. Að þessu sinni er þemað ‚sjálfstæði.’
...
Aukasýningar á Munaðarlaus
Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...
|