1. apríl 2008 09:19

Hannes og Háskólinn II

Nú birtast svör næstu fjögurra einstaklinga sem Kistan leitaði til vegna máls Hannesar Hólmsteins. Næstu svör verða birt seinnipart dagsins í dag og á morgun - um leið og þau berast.

 

 

 

Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í íslensku

 

1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?


Mér finnst hann strangur en réttlátur.


2. Á rektor að aðhafast í málinu?

 

Rektor verður að aðhafast í málinu.


3. Ef svo, með hvaða hætti?


Það ku vera nokkrar leiðir mögulegar og ég öfunda hana ekki af neinni þeirra.


4. Hvað finnst þér um auglýsingu stuðningsmanna Hannesar sem birtist í blöðunum um helgina?


Hún er frekar fyndin.


5. Hefur þú hugsað þér að veita söfnuninni stuðning?

 

Nei. 

 

Davíð Ólafsson, doktorsnemi í sagnfræði við St. Andrews

 

1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?

 

Það er gott að þeir fræðimenn sem hafa mátt sitja undir ámæli og ásökunum um pólitískar og persónulegar ofsóknir í störfum sínum, m.a. sem gagnrýnendur, fái slíka staðfestingu á því sem sáu verkinu til vansa. Nú hefur Hæstiréttur Íslands semsagt lagst á sveif með Víðsjá, Lesbók og ReyjavíkurAkademíunni í að níða af téðum höfundi skóinn.


 

2. Á rektor að aðhafast í málinu?

 

Ég geri ráð fyrir að stofnun eins og HÍ hafi starfsreglur sem nái yfir viðbrögð við brotum starfsmanna á sama hátt og kveðið er á um hvernig brugðist skuli við brotum nemenda. Alla vega vona ég að stofnunin geti haldið áfram að auglýsa sig með vísun í yfirgnæfandi traust þjóðarinnar til sín.

3. Ef svo, með hvaða hætti?

 

Sjá spurningu 2.

 

4. Hvað finnst þér um auglýsingu stuðningsmanna Hannesar sem birtist í blöðunum um helgina?

 

Háðung HHG af þessari auglýsingu er slík að með slíka stuðningsmenn þarf hann enga óvini.

5. Hefur þú hugsað þér að veita söfnuninni stuðning?


Mmmmm...nei.

 

Viðar Hreinsson, framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar

 

1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?


Ég fagna þessum dómi, hann undirstrikar þær reglur sem heiðarlegir fræðimenn eiga að beita í störfum sínum. Reglur um tilvísanir og höfundarrétt fela í sér gagnsæi sem er einn mikilvægasti hornsteinn fræðanna. Verk Hannesar var atlaga að þessu gagnsæi.

2. Á rektor að aðhafast í málinu?
 

Já, það er óhjákvæmilegt, að öðrum kosti mun háskólinn glata einhverju af þeirri virðingu sem hann nýtur og getur varla með aðgerðaleysi potað sér inn á margfrægan lista yfir hundrað bestu.

3. Ef svo, með hvaða hætti?
 

Alvarlegri áminningu eða jafnvel brottvikningu.

4. Hvað finnst þér um auglýsingu stuðningsmanna Hannesar sem birtist í blöðunum um helgina?
 

Barnalegur misskilningur, óskyldum hlutum blandað saman til að búa til píslarvott.

5. Hefur þú hugsað þér að veita söfnuninni stuðning?
 

Nei.

 

Vésteinn Ólason. forstöðumaður Árnastofnunar

 

1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi
Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?


Ég deili ekki við dómarann.

2. Á rektor að aðhafast í málinu?

 

Það verður hún að ákveða.

3. Ef svo, með hvaða hætti?

 

Ég efast um að kostur sé á öðru en áminningu.

4. Hvað finnst þér um auglýsingu stuðningsmanna Hannesar sem birtist í blöðunum um helgina?

Mér finnst þeir hefðu heldur átt að skjóta saman í þyrnikórónu.

5. Hefur þú hugsað þér að veita söfnuninni stuðning?

 

Nei.

Ritstjórn


Til baka


yfirlit frétta

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur. 

Meira
Sjálfstætt ljóðaslamm 2011

Fjórða ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið á Safnanótt, föstudaginn 11. febrúar 2011. Að þessu sinni er þemað ‚sjálfstæði.’ 

...
 
Aukasýningar á Munaðarlaus

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...