12. maí 2010 10:44

Aukasýningar á Munaðarlaus

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Egilsstöðum. Það virtust hafa verið síðustu sýningar verksins, enda aðstandendur flestir búnir að lofa sér í önnur verkefni, en nú er ljóst að sérstakar aukasýningar verða á verkinu næstkomandi föstudag. Þær eru tvær sama kvöldið, first kl. 19 og svo kl. 22 og í þetta skiptið er sýnt á Norðurpólnum sjálfum, nýju leikhúsi úti á Gróttu.

 

Sem fyrr er tekjutengd verðskrá á verkið, lágtekjufólk greiðir 2000 kr., miðstéttin greiðir 3000 kr. og hátekjufólk greiðir 5000 kr. Það er svo á ábyrgð gesta að segja rétt og satt frá fjárhagsstöðu sinni.

 

Munaðarlaus var frumsýnt á Edinborgarhátíðinni í sumar og verðlaunað þar, en því er svo lýst í leikskrá: „Munaðarlaus er verk sem rannsakar heim sem fæst okkar þekkja og viljum ekki vita af en er beint fyrir utan dyrnar okkar. Hversu langt erum við tilbúin að ganga til að vernda okkar nánustu? Hvernig getur samviskan haldist hrein þegar allir sveigja réttlætið að eigin þörfum? Danni og Helena eru búin að redda pössun, kæla vínið, kveikja á kertum og eru sest við kvöldverðarborðið. Allt stefnir í fullkomna kvöldstund þegar Ívar, bróðir Helenu, mætir á svæðið. Útataður í blóði. “

 

Vignir Rafn Valþórsson leikstýrir en það eru þau Hannes Óli Ágústsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Tinna Lind Gunnarsdóttir sem leika í verkinu, Gunnar Karel Másson semur tónlist og hljóðmynd, Anna María Tómasdóttir sér um búninga og ljósahönnun er í höndum Karls Sigurðssonar.


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur. 

Meira
Sjálfstætt ljóðaslamm 2011

Fjórða ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið á Safnanótt, föstudaginn 11. febrúar 2011. Að þessu sinni er þemað ‚sjálfstæði.’ 

...
 
Aukasýningar á Munaðarlaus

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...