Fjórða ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið á Safnanótt, föstudaginn 11. febrúar 2011. Að þessu sinni er þemað ‚sjálfstæði.’
Sem fyrr er ljóðaslammið ætlað ungu fólki (frá aldrinum 14 ára) og er skilgreint á afar opinn hátt sem eins konar ljóðagjörningur og er áherslan ekki síður lögð á flutninginn en á ljóðið sjálft. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóðaslamms.
Þema síðustu a´ra hafa verið ‚spenna’, ‚hrollur’ og ‚væmni‘. Eina krafan hefur verið sú að flutt væri frumsamið ljóð eða stuttur prósi og hafa þátttakendur sýnt dansverk, ör-leikþætti, rapp, fólk hefur sungið og leiklesið ljóð með myndefni svo eitthvað sé nefnt.
Sigurvegarinn árið 2008 var Halldóra Ársælsdóttir, sem vakti mikla athygli fyrir verðlaunaatriði sitt, sem nefndist Verðbréfadrengurinn. Árið 2009 voru það þær Ásta Fanney Sigurðardóttir og Ástríður Tómasdóttir sem sviðsettu ljóðagjörninginn Eine kleine hrollvekja með áhrifaríkum hætti.Væmna ljóðaslammið 2010 sigraði tríóið Greitt til hliðar plús tveir með ljóðinu Hlölli. Atriði þeirra verður endurflutt að lokinni dagskrá, meðan dómnefnd ræður ráðum sínum.
Fimm manna dómnefnd velur þrjú bestu atriðin. Í henni sitja fyrir hönd Borgarbókasafns Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur og Tinna Bjarnadóttir tónlistarkona. Aðrir eru Stefán Máni rithöfundur, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona og Óttarr Proppé tónlistarmaður.
Upptökur af siguratriðunum þremur verða settar á ljodaslamm.is, sem er undirsíða borgarbokasafn.is og á YouTube.
Ljóðaslammið er haldið í samstarfi við ÍTR og Rás2.
Sem fyrr segir er ljóðaslammið haldið á Safnanótt, 11. febrúar 2011, og fer dagskráin fram á aðalsafni Borgarbókasafns að Tryggvagötu 15 og hefst kl. 20:30.
Skráningarfrestur er til föstudagsins 28. janúar 2011.
Skráningareyðublöð er að finna á öllum Borgarbókasöfnunum, auk þess sem hægt er að skrá sig með tölvupósti hjá Kristínu Viðarsdóttur, kristin.vidarsdottir@reykjavik.is. Frekari upplýsingar má nálgast á ljodaslamm.is (sjá borgarbokasafn.is) og hjá Guðríði Sigurbjörnsdóttur, gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is, Kristínu Viðarsdóttur, kristin.vidarsdottir@reykjavik.is, Úlfhildi Dagsdóttur, ulfhildur.dagsdottir@reykjavik.is
.
Hér fyrir neðan má sjá leiðbeiningar fyrir ljóðaslamm 2011:
Ljóðaslamm felst í flutningi frumsamins ljóðs / ljóða þarsem áherslan er ekki síður á flutninginn, ‘performansinn’ eða gjörninginn, en á ljóðið sjálft. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupplestur ekki til ljóðaslamms, heldur er áherslan á ljóðaflutning sem sviðslist og miðað við að flytjandi / flytjendur fari með ljóðið samhliða tónlist, myndlist eða leiklist. Hvort sem er einstaklingur eða hópur getur flutt ljóðið.
Dæmi:
Tónlist (undirspil/millispil)
Rapp
Hljóðmynd (einhverjir hljóðeffectar)
Myndefni (myndband/skyggnur)
Leikrænn flutningur eða dans
Leiklestur
Almenn viðmið fyrir þátttakendur (og dómnefnd):
- Hvert atriði taki í mesta lagi 5 mín.
- Ljóðið verður að vera á íslensku.
- Gæta verður þess að vera ekki særandi gagnvart einstaklingum og / eða hópum.
- Texti 40%, flutningur 60%.
- Tæknimál verða að vera einföld (einn skjávarpi og tjald t.d., ekki aðstæður fyrir sviðsmynd nema það sem fólk getur auðveldlega tekið með sér inná sviðið og út af því aftur).
- Hámarksfjöldi í hóp: 5 manns.
|