14. apríl 2010 17:04

Vopnaði maðurinn í Kópavogi

Samkór Kópavogs stendur fyrir stórtónleikum í Lindakirkju föstudag og laugardag næstkomandi kl 20 í samvinnu við Kór Menntaskólans við Sund, Tónlistarskóla Kópavogs - Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.

 

Flutt verður verkið Vopnaði Maðurinn: Friðarmessa (The Armed Man: A Mass for Peace) eftir Karl Jenkins. Stjórnandi á tónleikunum verður Björn Thorarensen og Hjörleifur Valsson vermir sæti konsertmeistara.

 

Kórarnir tveir hafa innan sinna raða yfir 100 söngvara og sinfóníuhljómsveitin úr skólunum þremur verður skipuð um 70 hljóðfæraleikurum, blöndu af kennurum og lengra komnum tónlistarnemum. Um svipað leyti í fyrra flutti Samkórinn ásamt Kór Kársnesskóla og hljóðfæraleikurum úr Tónlistarskóla Kópavogs verkið Requiem eftir sama höfund og fylltu Lindakirkju þá þrisvar.

 

Vopnaði Maðurinn eftir Karl Jenkins var frumflutt í Royal Albert Hall í London þann 25. apríl árið 2000 og eru því rétt 10 ár frá því það var fyrst flutt. Það hefur verið flutt yfir 800 sinnum í meira en 20 löndum en þetta er í fyrsta sinn sem verkið í heild sinni er flutt hér á landi með hljómsveit í fullri stærð. Undirtitill verksins, Friðarmessa, vísar til þess að verkið hefur mjög sterkan friðarboðskap og er tileinkað fórnarlömbum borgarastríðsins í Kosovo, en það stríð stóð einmitt sem hæst um það leyti sem verkið var samið. Messan samanstendur af hefðbundnum messuliðum - Kyrie, Sanctus, Benedictus og Agnus Dei en inn á milli er fléttað köflum sem hafa það hlutverk að sýna hvað stríð eru hryllileg og tilgangslaus. Textar verksins koma úr ýmsum áttum; Davíðssálmar og Opinberunarbók Biblíunnar, múslímskt bænakall, franskur miðaldatexti, latneskir og grískir messutextar, ásamt ljóðum eftir m.a. Kipling, Tennyson og eftirlifandi fórnarlamb kjarnorkusprengjunnar í Hiroshima.

 

Miðaverð er 3000 kr. (2500 kr fyrir aldraða og öryrkja) og hægt er að panta miða á samkor@samkor.is og í síma 695 0427.


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur. 

Meira
Sjálfstætt ljóðaslamm 2011

Fjórða ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið á Safnanótt, föstudaginn 11. febrúar 2011. Að þessu sinni er þemað ‚sjálfstæði.’ 

...
 
Aukasýningar á Munaðarlaus

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...