„Um hávetur ferðuðust tveir fátækir pólskumælandi Rúmenar á puttanum um pólska sveit. Þau skildu eftir sig sviðna jörð hvert sem þau fóru, en ekki eru þó allir sammála um hvað gerðist í raun og veru. Ofbeldisfullt sýrutripp í gegnum Pólland nútímans sem er einskonar samblanda af ferðalagi Maríu Meyjar og Jóseps til Betlehem, Natural Born Killers, Fear and Loathing in Las Vegas, Bertholt Brecht og Samuel Beckett.“
Þannig er verkinu Tveir fátækir pólskumælandi Rúmenar eftir Dorotu Maslowsku lýst, en það verður frumsýnt á sunnudagskvöld kl. 20 á Norðurpólnum, þessum sem er að Bygggörðum 3 út við Gróttu. Það er Fátæka leikhúsið sem sýnir og leikstjóri er Heiðar Sumarliðason. Hann útskrifaðist úr leiklistarfræði og framkvæmd frá LHÍ árið 2008 og með MA gráðu í leikstjórn frá East 15 í London árið 2009. Heiðar hefur áður leikstýrt Heteróhetjur: Með fullri virðingu fyrir Ashley Cole (2007) og Rándýr (2009). Heiðar er höfundur Rautt brennur fyrir sem sýnt var í Borgarleikhúsinu á sl. leikári.
Pólskumælandi Rúmenarnir eru leiknir af Hannesi Óla Ágústssyni og Magneu Björk Valdimarsdóttur og þau Árni Pétur Guðjónsson, Aðalbjörg Árnadóttir, Vigdís Másdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson fara með önnur hlutverk.
Næstu sýningar eru 29. apríl og 5. Maí, miðasala er á midi.is eða í síma 845-2387 (á sýningardag).
|