19. apríl 2011 17:32

Óraunveruleikrit

Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að vera boðið á frumsýningu netleikritsins Jöklar nú síðasta föstudagskvöld. Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um, enda allt of sjaldan sem spennandi og tilraunakenndar nýjungar í leikhúsi bjóðast hér norður á Akureyri.

meira...
 

 
1. mars 2011 09:00 (3 lesendur hafa sagt álit sitt)

Góði dátinn Freyvangsleikhúsið

Föstudaginn 25. febrúar frumsýndi Freyvangsleikhúsið leikritið um Góða dátann Svejk, sem er maður sem margir hafa heyrt um. Sumir hafa lesið um hann bók en aðrir af afspurn. Svo er þriðji hópurinn, en það er fólk sem hefur byrjað að lesa bókina um Svejk en einhvern veginn ekki náð að festa sig við hana og ætlar pottþétt að lesa hana alla síðar, við betra tækifæri. Sjálf er ég í síðastnefnda hópnum, þessum sem er að bíða eftir betra tækifæri. Ég hafði því smá áhyggjur af því að hafa ekki klárað bókina áður en ég sæi leikritið en það voru óþarfa áhyggjur. Þessi uppsetning Freyvangsleikhússins á Góða dátanum Svejk er nefninlega svo vel heppnuð að hægt er að horfa á hana og njóta frá öllum mögulegum sjónarhornum.

meira...
 

 
1. febrúar 2011 12:17

Ástin á tímum Helfararinnar

Í fyrstu er erfitt að átta sig á hvar maður hefur myndina Leyndarmál  (Un secret). Í sýningarskrá er henni lýst sem ástarsögu frá tímum Seinni heimsstyrjaldar, og maður sér ósjálfrátt fyrir sér rómantískan njósnatrylli. Þegar myndin byrjar segir hún hins vegar frá stráknum Francois, sem er að komast á unglingsár á eftirstríðsárunum, fæddist undir lok stríðsins, svo það er erfitt að sjá hvernig þetta tengist. Á sama tíma er klippt fram og til baka á Francois 30 árum síðar, og virðist nánast sem að hér sé hringlað með tímann eins og í sumum sögum Kurt Vonnegut – en myndin er raunar byggð á samnefndri bók Philippe Grimbert.

meira...
 

 
1. febrúar 2011 09:00

Ævintýri fóstureyðingarsinna

Kvikmyndin Skrifstofur Guðs (Les bureaux de Dieu) er fremur merkilegt fyrirbæri. Í uppbygginu og útliti minnir hún að öllu leyti á heimildarmynd, en er þó leikin. Jafnvel má sjá Béatrice Dalle bregða fyrir, en allir sem voru að komast á kynþroskaskeið á 9. áratugnum muna líklega eftir henni úr Betty Blue.

meira...
 

 
24. janúar 2011 11:22 (2 lesendur hafa sagt álit sitt)

Staðgöngumóðirin og hommarnir

Það er orðinn fastur liður á hverri kvikmyndahátíð að hafa eina mynd um tvo karlmenn sem reyna að ættleiða barn. Slíkar myndir eru oftast fremur skemmtilegar (eins og hin sænska Patrick 1.5), raunar oftast áhugaverðari en myndir um vandamál í gagnkynhneigðum samböndum, hvað sem veldur. 

meira...
 

 
15. desember 2010 11:55 (2 lesendur hafa sagt álit sitt)

Biblíusögur fyrir lengra komna

Séra Þórhallur Höskuldsson sagði mér, og bekkjarfélögum mínum í 8C í Gagnfræðaskóla Akureyrar, að Biblían væri ekki bók þar sem maður byrjaði á fyrstu síðu og læsi í gegn. Ég hef oft velt fyrir mér hvers vegna hann sagði þetta. Ein skýring sem ég hef látið mér detta í hug er að ef maður les Biblíuna á kerfisbundin hátt geti maður ekki annað en misst trúna. Önnur skýring er sú að ef maður fer þessa leið kemur berlega í ljós hve leiðinleg bókin er. Ég veit um fjölmarga sem hafa gert heiðarlegar tilraunir til að lesa Biblíuna frá fyrstu síðu til hinnar síðustu – en gefist upp af einskærum leiðindum. Úlfar Þormóðsson gafst hins vegar ekki upp og barðist í gegnum Biblíuna (eða biblíuna ef við förum eftir órökréttum stafsetningarhefðum) alla og skrifaði um hana bókina Þú sem ert á himnum - Rýnt í bresti biblíunnar með guði almáttugum.

 

meira...
 

 
12. nóvember 2010 09:10

Takk fyrir hjartað

Það er ekki á hverjum degi sem ég lýk við lestur bókar og læt það vera mitt fyrsta verk að senda höfundi tölvupóst til að þakka fyrir mig. Kannski hef ég aldrei gert það áður, en það gerði ég eftir lestur skáldsögunnar Heim til míns hjarta: Ilmskýrsla um árstíð á hæli eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur.

 

meira...
 

 
28. október 2010 09:23

Andvaka peningar

Gordon Gekko átti víst að vera illmennið í Wall Street, en þrátt fyrir það hafa ófáir bissnissmenn síðustu ára litið upp til hans. Myndin endurspeglaði öfgafullan kapítalisma 9. áratugarins skemmtilega og er um leið innsýn í hugsunarhátt sem var mjög viðurkenndur allt til ársins 2008. En síðan kom hrunið og þessi hugsunarháttur er kannski ekki alveg jafn vel metinn í dag, þessi hugsun um að græða, græða, græða sé það sem haldi heiminum gangandi.

 

meira...
 

 
10. október 2010 10:14

Álfahólar og flatskjáir

8. október 2010 13:10

Sakleysisleg hryllingskómedía

3. október 2010 09:34

Feikaðar fullnægingar

15. september 2010 12:03 (1 lesandi hefur sagt álit sitt)

Djúphygli gærdagsins - léttmeti dagsins í dag

14. júlí 2010 18:42

Handan fyrirsagnanna

13. júlí 2010 10:42

Um þá sem eiga aðeins óskir

11. maí 2010 12:57

Nördarnir bjarga deginum, enn og aftur

5. maí 2010 15:30

Dauðrarokk, kirkjubrunar og McDonalds

5. maí 2010 09:50

Trúðurinn og vatnadísin

4. maí 2010 11:53 (1 lesandi hefur sagt álit sitt)

Dauðastríð og fastir liðir

30. apríl 2010 14:30

Syndir feðranna

26. apríl 2010 09:28

Í einskismannslandi

25. apríl 2010 16:24

Bréfberar og bardagamenn

20. apríl 2010 12:04

Ímyndunarheimur Terry Gilliam

16. apríl 2010 10:13

Erfðaprinsar og ófreskjur

8. apríl 2010 12:57

Hvolpur í banka


eldri fréttir

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur. 

Meira
Sjálfstætt ljóðaslamm 2011

Fjórða ljóðaslamm Borgarbókasafns Reykjavíkur verður haldið á Safnanótt, föstudaginn 11. febrúar 2011. Að þessu sinni er þemað ‚sjálfstæði.’ 

...
 
Aukasýningar á Munaðarlaus

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly var sýnd í janúar og febrúar fyrir fullu húsi í Norræna húsinu og fór í kjölfarið í hringferð um landið, var sýnd á Akureyri, Vopnafirði og á Eg...