Síðasta bók sem hafði áhrif:
Aldrei aftur meðvirkni – afskaplega holl og góð lesning fyrir stjórnsaman meðvirkil.
Kvikmynd sem snerti taug:
The Notebook – grét yfir henni og hugsaði til alzheimerssjúklinganna sem ég var að annast á þeim tíma.
Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?
Tinna Gunnlaugsdóttir mun ná að túlka fegurð mína og dramatíska tilvist.
Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta?
Færeyska og íslenska tóna Friðriks Ómars og Jógvans og hugsa um hvernig þetta myndi lesast á færeysku.
Minnistæður kennari:
Guðbjörg Aðalbergsdóttir, íslenskukennarinn minn úr FS og núverandi skólameistari í Mosfellsbæ. Hún kveikti í mér bókmenntafræðiáhugann.
Hvaða lexíu lærðirðu síðast?
Að það sem þú segir niðri á Tanga verður komið upp í hverfi á undan þér.
Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?
Atli Rúnar Tómasson (ART) – frændi minn sem málar stórkostleg málverk um risaeðlur og börn þeirra.
Hvar er draumurinn?
Hann má finna í Bandaríkjunum í Mall of America. Bara að kaupa sér drauminn og lifa svolítið 2007.
Gott sparnaðarráð í kreppunni:
Ekki hræðast svínakjöt, skella sér á afsláttarkjötið í Krónunni.
Hver er eftirminnilegasta matarminningin?
Uppgötvun mín með að hræra jólaköku út í kaffi og borða með skeið. Amma Njóla var dyggur stuðningsmaður minn í þessum framkvæmdum þegar ég var 6 ára.
Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?
Kvenkyns morðingi sem ég hitti á Grand Rokk forðum daga.
Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?
Borgaði niður skuldir íslenska ríkisins og splæsti svo í heimsreisu fyrir mig og saumaklúbbinn.
Hvaða tónlist hæfir tímunum?
Ekkert rafmagnsvæl, bara klassíkerarnir með dramatískar sinfóníur.
Ef prump hefði lit, hvernig væri þitt?
Mitt prump væri fjólublátt með glimmeri.
|