| Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 11:34 af www.kistan.is |
14. desember 2010 |
Ævintýranna vitjað |
Töfrar kvikmyndanna koma sjaldan jafn vel í ljós í kvikmyndum eins og E.T. – The Extra Terrestrial (1982). Sagan af Elliot, systkinum hans og kynnum þeirra af geimverunni E.T. er fullkomin blanda af ævintýri og góðum boðskap sem hentar allri fjölskyldunni. |
Ef myndirnar um Stjörnustríðin kenndu Hollywood framleiðendum eitthvað þá var það að vanmeta ekki mátt barna sem neytenda. Börn urðu í vaxandi mæli að markhópi kvikmyndaframleiðenda, enda var meira í húfi en aðeins miðasala. Vinsæl mynd og vel heppnuð markaðssetning gat fært framleiðendum leikfanga milljónir dala, jafnvel milljarða, í gróða væri rétt staðið að málum. Við þetta mátti bæta auglýsingatekjum af þeim vörum sem komu fyrir í myndunum. Enda er kóka-kóla skammlaust komið fyrir í samtali Elliots og E.T. framarlega í myndinni og dósin höfð mjög sýnileg í atriðinu. Hvað sem markaðsetningu líður þá er gild ástæða fyrir vinsældum myndarinnar. Krökkum þykir hún skemmtileg.
Sagan fjallar umfram annað um gildi vináttu og þá sérstaklega þann fagra boðskap að vinátta eigi ekki að fara eftir útlitslegri samsömun heldur eftir raunverulegum tilfinningatengslum. Þessi tengsl birtast á skemmilegan hátt í E.T. þar sem Elliot og geimveran tengjast með hugsanamiðlun (e. telepathy) og stjórnast líðan þeirra af hinum ef svo ber undir. Sem dæmi má nefna þegar E.T. er heima að horfa á rómantíska mynd og Elliot, sem upplifir tilfinningar geimverunnar, þrífur til sín stúlku í skólanum og kyssir hana á sama hátt og söguhetja kvikmyndarinnar kyssir stúlkuna sína. Með því að hafa E.T. og Elliot tengda á þennan hátt kynnir Spielberg áhorfendur sína fyrir tilfinningatengslum á mjög sjónrænan hátt. Börn, sem skilja ekki alltaf það sem má lesa á milli línanna, geta því upplifað tengsl þeirra sem eitthvað áþreifanlegt sem þau sjá. Því eiga þau auðveldara með að heimfæra samband þeirra á eigin tilfinningatengsl. Myndin er einnig þroskasaga Elliots. Hann lærir að elska skilyrðislaust því hann lærir að ást snýst líka um að virða vilja annarra. Bröttför geimverunnar, þótt tregablandin sé, verður til þess að honum lærist að kveðja. Heimför E.T. má þannig líka við dauða ættingja eða vinar. Geimveran, sem er augljóslega fullorðin, tilheyrir öðrum stað eða annarri vídd. Það þýðir ekki að hún sé ekki elskuð og að hennar verði ekki minnst. Brottför hennar upp í himininn má auðveldlega túlka sem hliðstæðu við himnaferðir eldri ættingja, eitthvað sem langflest börn þurfa að horfast í augu við, þar á meðal Elliot sem hefur misst föður sinn.
Hluti af töfrum myndarinnar er vera Drew Barrymore á tjaldinu í hlutverki systur Elliots. Frammistaða ungra barna í kvikmyndum og sjónvarpi er oft æði mistæk en nærvera Barrymore er ekki aðeins heillandi heldur er framkoma hennar sem sex ára stúlku sérlega trúverðug. E.T. var upphafið af hennar langa og afdrifaríka ferli sem framan af markaðist af vansæld og fíkniefnamisnotkun. Það er því ekki laust við að siðferðisspurningar vakni varðandi þátt hennar í myndinni. Líkt og myndin sjálf er Barrymore markaðssett sem söluvara. Sem barn hefur hún engar forsendur til að gera sér nokkra grein fyrir því hvað slíkt þýðir – ekki frekar en ungir neytendur sem vilja kaupa sér kók og E.T. dúkkur.
|
Helga Þórey Jónsdóttir |