Prentað laugardaginn 18. maí kl. 14:13 af www.kistan.is
9. júní 2008 09:39

Guð. Hvar varstu? II

Í fyrrgreindri tilvitnun ræðir Strákurinn um geðræn vandamál og hræðslu fólks við að glíma við þau og leita sér aðstoðar. Mikilvægt málefni í raunveruleikanum, eitthvað sem áhorfendur tengja við.  

meira...
 

 
2. júní 2008 09:33

Guð. Hvar varstu? I

- um heilagt, óheflað og nálægt í Yfirvofandi eftir Sigtrygg Magnason

Leikritið Yfirvofandi eftir Sigtrygg Magnason var frumsýnt á Listahátíð í Reykjavík í maí 2007, að heimili hans, Lokastíg 5 í Reykjavík. Í janúar 2008 var verkið sett upp að nýju á sama stað með sömu aðstandendum. Leikstjóri var Bergur Þór Ingólfsson, en leikendur Edda Arnljótsdóttir (Hún), Ingvar E. Sigurðsson (Hann) og Jörundur Ragnarsson (Strákurinn). Í stuttu máli fjallar verkið um brostið hjónaband og samskiptaörðugleika innan þess. Ástæðan er andlát Stráksins 26 árum fyrr. 

meira...
 

 
16. júlí 2007 13:53

Samfélagsleg áhrif verkalýðshreyfingarinnar

Hvarf verkalýðsstéttarinnar er ein af óleystum gátum samtímans. Hvernig gat heill hópur fólks, heil stétt, meirihluti þjóðarinnar, horfið af opinberum vettvangi? Verkalýðsstéttin er orðin nánast ósýnileg í opinberri umræðu, kröfur hennar um þjóðfélagslegt réttlæti, jafna uppskiptingu þjóðarauðsins og afnám arðránsins hafa hljóðnað. Það sem meira er, á 20. öld var verkalýðsstéttin handhafi framtíðarinnar, fararstjóri framfaranna, völd hennar voru talin forsenda þess að útópía yrði að veruleika. 

meira...
 

 
13. júní 2007 18:58

Dómur yfir hverjum?

„Samræða“ í dómnefndaráliti eftir Sigurð Gylfa Magnússon

Á dögunum var dómnefndaráliti til að meta hæfi rita Sigurðar Gylfa Magnússonar sagnfræðings til doktorsprófs lekið út í fræðasamfélagið áður en það hafði fengið formlega afgreiðslu hugvísindadeildar. Sigurður Gylfi birtir það hér í heild sinni. Að auki skýrir hann einstaka þætti þessa sérkennilega máls sem varpar áhugaverðu ljósi á vinnubrögð í háskólasamfélaginu.

 

meira...
 

 
22. maí 2007 11:59

Frigg og Freyja

Bókin „Frigg og Freyja“ er byggð á meistararitgerð höfundar í þjóðfræði í Háskóla Íslands. Helstu rannsóknarspurningar sem lagt er upp með eru: Eiga Frigg og Freyja sameiginlegar rætur? Ef svo, hverjar eru þær rætur? Ef ekki, hverjar eru rætur þeirra hvorrar fyrir sig? Til þess að svara þessum spurningum, skoðar höfundur margar tegundir af heimildum um þessar gyðjur: 1) fornleifar frá ýmsum tímabilum, sem hafa með gyðju- og frjósemisdýrkun að gera, 2) örnefni í Skandinavíu sem tengjast Frey, Freyju og Nirði (þessum kafla fylgja svæðiskort, sem sýna dreifingu þeirra örnefna) 

meira...
 

 
23. apríl 2007 23:48

“Það er draugur í veiðihúsinu.”*

Er leikritið Straumrof víxlspor eða lykilverk á ferli HKL?

Haustið 1934 var viðburðaríkt í lífi Halldórs Kiljans Laxness. Í síðari hluta októbermánaðar kom út fyrri hluti Sjálfstæðs fólks og rúmum mánuði síðar var fyrsta leikrit hans, Straumrof, frumsýnt af Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó. Þá kom Salka Valka út á dönsku og hlaut rífandi viðtökur, fyrsti stórsigur skáldsins í útlöndum. Straumrof varð hins vegar enginn stórsigur, gekk aðeins fimm sinnum og fékk yfirleitt miðlungs dóma. Síðari dómar fræðimanna og gagnrýnenda hafa einnig verið neikvæðir. Peter Hallberg og Halldór Guðmundsson telja það báðir misheppnað 

meira...
 

 
28. febrúar 2007 14:58

Stafrænt lýðræði eða nýtt ofríki sýndarrýmisins?

Að þessu spyr Slavoj Žižek í grein um tilnefningu Time á manni ársins. Žižek segir að ýkjurnar um frelsi á netinu hylji bæði margbreytileika valdsins og hættuna á því að mörkin á milli þess sem maður er í raunveruleikanum og sýndarveruleikanum verði of óljós.

meira...
 

 
14. nóvember 2006 14:58

Einsagan frá guðfræðilegu sjónarhorni

Óhætt er að segja að mikil gróska sé í sagnfræðirannsóknum á Íslandi. Hvert yfirlitsverkið á fætur öðru kemur út, sérefnisritgerðir á ýmsum sviðum sagnfræðinnar líta dagsins ljós, auk fjölda greina í ýmsum tímaritum og sérritum. Söguþing og fræðsluerindi eru haldin með reglulegu millibili.

meira...
 

 
9. nóvember 2006 14:58

Sannindahugtakið í heimspeki Alain Badiou

9. október 2006 11:43

Að skrifa konur inn í þjóðarsögu

6. september 2006 11:43

Klukk

30. ágúst 2006 11:43

Er „kristin trú“ til?

7. júní 2006 11:43

Orðræða – umræða

31. maí 2006 11:43

Draumur eða martröð?

29. maí 2006 11:43

Sjálfsmyndir á sýningu

25. maí 2006 11:43

Á hverju lifum við?

23. maí 2006 11:43

Siðfræði andstöðunnar

23. mars 2006 11:43

HVER VEGUR AÐ HEIMAN ER VEGURINN HEIM

10. mars 2006 11:43

Hafa ímyndir áhrif?

24. febrúar 2006 11:43

Heimsyfirráð eða dauði

22. febrúar 2006 11:43

Lúðar eða bisnissmenn?

20. febrúar 2006 11:43

Menningararfur í einskismannslandi

6. október 2005 11:43

Að safna sögum: nokkrar pælingar út frá þjóðsagnasöfnun á 19. öld

20. september 2005 11:43

,,Safnar ættingjum”


eldri fréttir