Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 04:29 af www.kistan.is
27. maí 2004 10:51

Eyadéma, einræðisherrann stöðugi

Gnassingbé Eyadéma er fæddur árið 1937 og hefur verið forseti í Afríkuríkinu Togo frá árinu 1967 til þessa dags. Árið 1963 skipulagði hann með hernum fyrsta valdaránið í sögu Afríku og þegar hann varð einræðisherra árið 1967 bannaði hann alla stjórnmálaflokka og allt stjórnmálastarf. Eftir að ný stjórnarskrá var sett á 1992 voru haldnar kosningar sem Eyadéma sigraði með 96% atkvæða. Hann sigraði aftur í kosningum 1998 og árið 2002 breytti hann stjórnarskránni frá því tíu árum áður sem kveðið hafði úr um að forseti mætti ekki sitja lengur en tvö kjörtímabil. Hann var endurkjörinn árið 2003 og hefur setið lengst í embætti allra leiðtoga í heiminum. Nýverið var hann settur forseti Afríkusambandsins. "Friður og stöðugleiki eru grunnurinn sem Sambandið verður að byggja á," sagði hann í setningarræðu sinni. "Afrískt lýðræði þróast á eigin hraða og með eigin hætti," sagði Gnassingbé Eyadéma.

Eyadéma safnar auði og er meðal ríkustu manna heims. Auðurinn er sagður illa fenginn og kosningar jafnan helbert svindl. Árið 2000 setti Eyadéma ný og strangari fjölmiðlalög sem gera yfirvöldum kleift að hafa mun meiri stjórn á fjölmiðlunum en áður var. Nú viðgengst ritskoðun í stórum stíl og blaðamönnum er einatt varpað í fangelsi. Síðast í febrúar var skrúfað fyrir leyfi gagnrýninnar útvarpsstöðvar, sem þó var aðeins með innhringiþætti. Blöð sem gagnrýna stjórnvöld ganga í dag nær einvörðungu á áskriftar- og lausasölu því fyrirtæki þora ekki að auglýsa í þeim. Þegar blað dagsins er gert upptækt, sem hendir með reglulegu millibili, er blaðamaðurinn launalaus þann daginn. Blöð hlynnt stjórnvöldum eru einnig gerð upptæk reglulega. Tilefnið er annaðhvort ærumeiðandi ummæli og persónuárásir eða að grafa undan stjórnvöldum. Sonur forsetans hótaði nýverið morði á einstaklingi sem fjallaði um auðsöfnun forsetans og gagnrýndi stjórnarhætti hans. Blaðamaður skýrði frá hótuninni og var varpað í fangelsi fyrir.

Í Togo eru nú sagðar ríkja langslökustu aðstæður pressunnar í Afríku. Ritskoðun og kúgun er í algleymingi. Þannig horfir ástandið við úr fjarskanum séð. Kannski lítur það öðruvísi út ef nær er staðið, hver veit?

 

-Grænhöfði

Grænhöfði


Til baka


yfirlit frétta