Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 03:20 af www.kistan.is
31. mars 2008 17:18

Hannes og Háskólinn I

Í ljósi nýfallins dóms í Hæstarétti yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni vegna ritstuldar við ritun ævisögu Halldórs Kiljans Laxness og umræðu í samfélaginu um þýðingu dómsins hefur Kistan ákveðið að leita álits rúmlega 20 háskólamanna um málið. Þar er spurt um eftirtalin atriði: 

1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?

2. Á rektor að aðhafast í málinu?

3. Ef svo, með hvaða hætti?

4. Hvað finnst þér um auglýsingu stuðningsmanna Hannesar sem birtist í blöðunum um helgina?

5. Hefur þú hugsað þér að veita söfnuninni stuðning?
 
Í dag og næstu dag verða svörin birt á Kistunni. Lesendur eru hvattir til að fylgjast með gangi umræðunnar
 
 
 
 
 
Hér að neðan birtast svör þriggja einstaklinga:
 
Íris Ellenberger, doktorsnemi og formaður Sagnfræðingafélags Íslands.
 
1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini  Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?
 
Dómurinn er nokkuð strangur en ég er þó sammála honum að mestu leyti enda er ég mjög hlynnt gæsalöppum. A.m.k. virðist dómurinn í takt við þær kröfur sem gerðar eru um fræðileg vinnubrögð.

2. Á rektor að aðhafast í málinu?

Rektor hlýtur a.m.k. að kanna það hvort eigi að grípa til aðgerða þar sem prófessor við skólann er dæmdur fyrir brot á höfundarréttarlögum. Það hlýtur að hafa einhverjar afleiðingar í för með sér fyrir Hannes þótt ég vilji ekki spá fyrir um hvers eðlis þær verði eða ættu að verða.
 
3. Ef svo, með hvaða hætti?

Sjá svar við 2.

 
4. Hvað finnst þér um auglýsingu stuðningsmanna Hannesar sem birtist í blöðunum um helgina?

 
Hún fór algerlega framhjá mér.

5. Hefur þú hugsað þér að veita söfnuninni stuðning?

 Nei.
 
Gauti Kristmannsson, lektor í þýðingarfræðum við HÍ
 
1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?

Hann staðfestir að vinnubrögð HHG við samningu bókarinnar Halldór voru forkastanleg. Þetta var reyndar þegar staðfest í héraðsdómi þótt hann slyppi við skaðabótagreiðslur á lagatæknilegu atriði. En eignarétturinn er stjórnarskrárvarinn og það á að eiga við bæði Jón og séra Jón. Menn eru
handteknir hér á landi og þeim refsað fyrir að hala niður amerískar bíómyndir til eigin nota.

2. Á rektor að aðhafast í málinu?

Já.

3. Ef svo, með hvaða hætti?

Segja prófessornum upp starfi, hann hefur þverbrotið grundvallarreglur þær sem háskólamönnum ber að starfa eftir. Á þetta hefur HHG sjálfur bent á í grein á vefsíðu sinni að sé venjan að gera við háskóla erlendis.

4. Hvað finnst þér um auglýsingu stuðningsmanna Hannesar sem birtist í blöðunum um helgina?

Hún er ódýr spuni. Í fyrsta lagi mun prófessorinn vera eignamaður, einnig hafa þeir dómar sem fallið hafa á hann og valda honum kostnaðarauka verið vegna afbrots og auðgunar annars vegar og opinberu og ósönnuðu illmælgi gagnvart öðrum einstaklingi hins vegar. Einu gildir hvort sá einstaklingur
telst vera „auðmaður“ eða ekki.

5. Hefur þú hugsað þér að veita söfnuninni stuðning?

Alls ekki.
 
Jón Ingólfur Magnússon, prófessor í stærðfræði við HÍ
 
1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini
Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?


Hann er maklegur.

2. Á rektor að aðhafast í málinu?

Annað gengur hreinlega ekki!

3. Ef svo, með hvaða hætti?

Hann ætti að veita Hannesi áminningu fyrir afglöp í starfi.

4. Hvað finnst þér um auglýsingu stuðningsmanna Hannesar sem
birtist í blöðunum um helgina?


Hún er grátbrosleg.

5. Hefur þú hugsað þér að veita söfnuninni stuðning?

Ég kom í hús um helgina þar sem umrædd auglýsing hafði verið fest upp og undir henni stóð söfnunarbaukur. Í baukinn hafði komið alls einn tuttuguogfimmeyringur danskur, þegar mig bar að. Ég gef ekki upp hvað ég lét af hendi rakna, en um frekari stuðning af minni hálfu verður ekki að ræða.

 
 

Ritstjórn


Til baka


yfirlit frétta