| Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 01:44 af www.kistan.is |
1. apríl 2008 11:51 |
Hannes og Háskólinn III |
Háskólafólk hefur tekið vel í að svara spurningum Kistunnar um mál Hannesar Hólmsteins. Hér að neðan eru svör næstu fjögurra einstaklinga, þeirra Eggerts Briem prófessors í stærðfræði, Hallfríðar Þórarinsdóttur, Hallfríðar Þórarinsdóttur doktors í mannfræði og forstöðumanns MIRRU, Ingunnar Ásdísardóttur þjóðfræðings og þýðanda, Ólínu Þorvarðardóttur doktors í þjóðfræði og Soffíu Auðar Birgisdóttur bókmenntafræðings og aðjúnkts við HÍ.
Eggert Briem, prófessor í stærðfræði við HÍ
1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?
Eðlilegur.
Já.
3. Ef svo, með hvaða hætti?
Kalla Hannes til sín, veifa framan í hann vísifingri og segja að
Fyrirsjáanleg.
5. Hefur þú hugsað þér að veita söfnuninni stuðning?
Nei.
Hallfríður Þórarinsdóttir, doktor í mannfræði og forstöðumaður MIRRU
1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?
Að sjálfsögðu. Háskóli Íslands missir allan trúverðugleik ef HHG fær að sitja áfram óáreittur í stöðu sinni. Það er ósanngjarnt gagnvart öllum heiðarlegum fræðimönnum stofnunarinnar.
Segja honum upp. Hvernig eiga aðrir kennarar við
Hún er náttúrulega bara grátbrosleg.
Ég kýs fremur að fjárfesta í annars konar mannauði.
Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur og þýðandi
1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?
Það er einsýnt að þarna er um ritstuld að ræða; ritstuldur er lögbrot og rétt og sjálfsagt að dæma menn sem gera sig seka um slíkt. Séu svona vinnubrögð látin óátalin, eru þau lög sem kveða á um höfundarrétt ómarktæk og einskis verð.
2. Á rektor að aðhafast í málinu? Rektor getur ekki annað en aðhafst eitthvað í málinu, annað væri óeðlilegt.
3. Ef svo, með hvaða hætti? Ég sé ekki hvernig rektor getur forsvarað það að hafa kennara starfandi sem hefur gert sig sekan um vinnubrögð af þessu tagi; einkum og sér í lagi þar sem viðhorf viðkomandi kennara eru þau að þess konar aðferðafræði sé í lagi. Hann leyfir þá væntanlega nemendum sínum að gera slíkt hið sama en það brýtur í bága við þær aðferðir sem teljast viðurkennd vinnubrögð innan Háskóla Íslands.
4. Hvað finnst þér um auglýsingu stuðningsmanna Hannesar sem birtist í blöðunum um helgina? Mér finnst hún hlægileg en líka heldur dapurleg þar sem að henni stendur greinilega fólk sem sér ekkert athugavert við vinnubrögð viðkomandi og ætlar að koma honum hjá því að þurfa að standa reikningsskil gerða sinna. Þar að auki er þar blandað saman tveimur óskyldum málum með óljósu orðalagi til að rugla fólk í ríminu og vekja samúð þess.
Nei.
Ólína Þorvarðardóttir, doktor í þjóðfræði
1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?
Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur og aðjúknt við HÍ
1. Hvað finnst þér um nýfallinn dóm yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í stjórnmálafræði við HÍ?
Dómurinn er í takt við afbrotið.
Já, annað er ófært og væri skólanum til háðungar.
3. Ef svo, með hvaða hætti?
Verði nemandi við H.Í. uppvís að ritstuldi er hann fallinn í viðkomandi námskeiði og á á hættu að vera vikið úr skóla. Stundum er tekið mildilega á slíkum afbrotum og fallið látið nægja ásamt áminningu. Málið hlýtur að vera enn alvarlegra þegar um prófessor við skólann er að ræða. Ef rektor metur málið þannig að brotið varði ekki fullnaðarbrottvikningu úr starfi 4. Hvað finnst þér um auglýsingu stuðningsmanna Hannesar sem birtist í blöðunum um helgina? Hjákátleg.
Nei.
|
Ritstjórn |