Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 14:38 af www.kistan.is
19. mars 2010 02:35

Bókmenntaverðlaun kvenna

Á sunnudaginn kl. 11 heldur breski metsöluhöfundurinn Kate Mosse fyrirlestur um tilurð og sögu Orange bókmenntaverðlaunanna sem einungis eru veitt konum.Mosse var helsta hvatamanneskja þessara virtu bókmenntaverðlauna og er nú heiðursfélagi samtakanna sem veita þau.

Fyrirlesturinn fer fram á Hótel Sögu (Radisson Blu), í fundasal á 1. hæð.

 

Um kl. 12 verða Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna síðan veitt í fjórða sinn, í þremur flokkum: Fagurbókmenntir, fræðirit, barna- og unglingabækur.Að lokum verður boðið upp á léttar veitingar.

 

Það er Góuhópurinn (grasrótarhópur kvenna innan Rithöfundasambands Íslands og Hagþenkis) sem stendur að Góugleðinni, fjórða árið í röð. Allt áhugafólk um bókmenntir er velkomið.

 

Æsa Sigurjónsdóttir, Álfrún Gunnlaugsdóttir, Kristín Ómarsdóttir, Jenna Jensdóttir, Auður A. Ólafsdóttir, Elísabet Jökulsdóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Ingunn Ásdísardóttir, Kristín Marja Baldursdóttir, Þorgerður Jörundardóttir, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Anna Cynthia Leplar, Margrét Tryggvadóttir, Kristín Steinsdóttir, Hélene Magnússon, Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn Már Baldursson hafa áður hlotið verðlaunin, sá síðastnefndi fyrir samstarfsverkefni með Hallfríðí sem skýrir veru karlmanns á listanum.

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta