Heimspekivefurinn hefur nú gengið í endurnýjun lífdaga eftir alllangt hlé. Vefurinn er starfræktur af Heimspekistofnun í samvinnu við Hugvísindastofnun og Félag áhugamanna um heimspeki. Vefurinn birtir greinar og annað efni á íslensku tengt heimspeki og leitast við að gera það á sem aðgengilegastan hátt. Vefnum er jafnframt ætlað að vera góður byrjunarreitur fyrir þá sem vilja leita að heimspekilegu efni á veraldarvefnum, hvort sem er íslensku eða erlendu.
Ritstjóri er Henry Alexander Henrysson og vefstjóri Kristian Guttesen. Yfirumsjón með uppsetningu hafði Sigurjón Ólafsson, vefstjóri Hugvísindasviðs.
Slóðin er heimspeki.hi.is
|