30. júlí 2010 09:11 |
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir |
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir var mikill dugnaðarforkur og bónusvíkingur á sínum yngri árum og vann þá ýmis störf til sjávar og sveita, en snemma fór þó að síga á ógæfuhliðina. Hún tók B.A. próf í bókmenntafræði og hefur síðan starfað á dagblaði, femínistatímariti, bókasafni og bókaforlagi, þýtt nokkrar bækur almenns efnis og skrifað fjórar ævisögur, m.a. um nöfnurnar Margréti Frímannsdóttur og Margréti Pálu Ólafsdóttur.
|
meira... |
| |
9. júlí 2010 11:01 |
Hjálmar Einarsson |
Hjálmar Einarsson er leikstjóri bíómyndarinnar Boðbera, sem frumsýnd var í vikunni. Hann lærði kvikmyndagerð í kvikmyndaskólanum FAMU í Tékklandi, þar sem hann lærði meðal annars hjá kviðmági Joseph Göbbels.
|
meira... |
| |
21. maí 2010 18:07 |
Kári Tulinius |
Kári Tulinius sendi í vikunni frá sér sína fyrstu skáldsögu, Píslarvottar án hæfileika, sem kom út hjá Forlaginu. Hann hefur stundað nám í bókmenntafræði í HÍ og í Bandaríkjunum en tók sér frí til þess að skrifa bókina, en hefur nú tekið upp þráðinn aftur og vinnur að BA-ritgerð.
|
meira... |
| |
1. apríl 2010 16:41 |
Angela Rawlings |
Angela Rawlings (eða a.rawlings) er kanadískt skáld og þverfaglegur listamaður. Hennar fyrsta bók var Wide slumber for lepidopterists og hún hefur eytt þessu ári og því síðasta í Belgíu, Kanada og á Íslandi við að vinna að handritum næstu bóka, rannsaka samband hljóðs, texta og hreyfingar og finna samstarfsfleti með listamönnum á staðnum. Í Reykjavík hefur hún einnig haldið ritsmiðjur með skáldum sem og áhugamönnum í samstarfi við Nýhil.
|
meira... |
| |
19. mars 2010 10:10 |
Þórdís Nadia Semichat |
Þórdís Nadia Semichat er Íslandsmeistari í magadansi, uppistandari, barþjónn, framkvæmdastjóri, kvikmyndafræðinemi og verðandi leikkona. Sem sagt dæmigerður alltof-bissí Íslendingur. Hún stofnaði uppistandsfélagið Uppistöðufélagið, hóp kvenna sem hafa stundað uppistand á Næsta bar undanfarna mánuði við góðar undirtektir. Þar vinnur hún raunar einnig sem barþjónn og framkvæmdastjóri, þegar hún er ekki að kenna magadans í Kramhúsinu. Þá mun hún leika í Borgríki Ólafs de Fleur, sem nú lítur út fyrir að verði að veruleika eftir allt saman.
|
meira... |
| |
26. febrúar 2010 14:06 |
Ingi Björn Guðnason |
Ingi Björn Guðnason er bókmenntafræðingur og starfar sem verkefnastjóri hjá Háskólasetri Vestfjarða en hans verður þó væntanlega helst minnst sem mannsins sem afhjúpaði frúna í Hamborg.
|
meira... |
| |
19. febrúar 2010 10:00 |
Halla Gunnarsdóttir |
Halla Gunnarsdóttir er kona marghöm. Hún er kennari og alþjóðastjórnmálafræðingur, titlar sig sem blaðamann, vann lengi á Mogganum, var aðstoðarkona Ögmundar Jónassonar í heilbrigðisráðuneytinu, er nýgengin í Rithöfundasambandið og með eina viðtalsbók í vinnslu, en áður hefur hún sent frá sér ljóðabókina Leitin að Fjalla-Eyvindi og viðtalsbókina Slæðusviptingar: raddir íranskra kvenna. Þessa dagana situr hún að mestu í Háskóla Íslands og skrifar um öryggis- og varnarmál.
|
meira... |
| |
12. febrúar 2010 12:18 |
Hannes Óli Ágústsson |
Hannes Óli Ágústsson er leikari og bókmenntafræðingur sem undanfarið hefur farið með leikritið Munaðarlaus landshorna á milli og var nýbúinn að sýna á Akureyri þegar hann svaraði Kistunni. Einhverjir gætu líka kannast við hann úr hlutverki gluggagægisins Sigmundar Davíðs í síðasta áramótaskaupi.
|
meira... |
| |
5. febrúar 2010 10:00 |
Karen Dröfn Kjartansdóttir |
29. janúar 2010 15:18 |
Kári Páll Óskarsson |
22. janúar 2010 09:59 |
Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir |
15. janúar 2010 10:57 |
Hallur Þór Halldórsson |
8. janúar 2010 10:38 |
María Gestsdóttir |
23. desember 2009 11:13 |
Wali Safi |
18. desember 2009 11:00 |
Þórhildur Ólafsdóttir |
11. desember 2009 11:00 |
Óli Gneisti Sóleyjarson |
4. desember 2009 11:28 |
Birta Fróðadóttir |
27. nóvember 2009 09:33 |
Jón Bjarki Magnússon |
20. nóvember 2009 09:33 |
Vera Sölvadóttir |
13. nóvember 2009 09:26 (1 lesandi hefur sagt álit sitt) |
Brynja Bjarnfjörð |
6. nóvember 2009 12:23 |
Tómas Lemarquis |
30. október 2009 13:26 (1 lesandi hefur sagt álit sitt) |
Ásthildur Valtýsdóttir |
22. október 2009 07:00 |
Þröstur Helgason |
6. janúar 2009 10:42 |
Haukur Ástvaldsson |
eldri fréttir
|