Síðasta bók sem hafði áhrif:
Kafka on the Shore eftir Haruki Murakami. Af hverju hún hafði áhrif á mig er erfitt að svara, flestar bækur sem ég hef lesið eftir Murakami snerta alltaf á einhvern hátt við mér.
Kvikmynd sem snerti taug: Mulholland Drive situr föst í mér, alltaf. Ég elska hvernig David Lynch setur skrítna tilfinningu í mann eins og maður sé fastur í martröð, þar sem kannski ekkert hræðilegt gerist en tilfinningin er svo slæm. Mulholland Drive er einmitt þannig og þessi ónotatilfinning situr lengi í manni eftir að hafa horft á myndina, mér finnst það ansi magnað að ein kvikmynd geti haft slík áhrif á mann.
Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?
Ég hugsa að það yrði nánast ómögulegt að finna einhvern jafn fallegan eins og mig, en sú sem væri kæmist nást því væri Leighton Meester, bara af því mér finnst hún falleg.
Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta?
Eitthvað melankólískt. Helst eitthvað sem minnir mann á ástarsorg, það eru fallegustu lögin. Kannski er einhver í ástarsorg yfir mér? Ef svo er spilaðu þá „Cucurrucucu Paloma“ með Caetano Veloso og finndu þýðinguna á textanum ef þú skilur ekki spænsku. Textinn er svo fallegur að maður grætur.
Minnistæður kennari: Ég hef haft frábæra kennara í gegnum tíðina, en einn stóð alveg upp úr. Hann heitir Þorvaldur og er enskukennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hann kennir rosalega vel og er mjög þolinmóður, hann hafði alltaf trú á manni og ef hann fann fyrir að maður var að trassa eitthvað þá tók hann mann á eintal og peppaði mann upp. Hann hjálpaði mér rosalega mikið og kynnti mig fyrir ýmsum frábærum rithöfundum í gegnum kennsluna. Þorvaldur er frábær.
Hvaða lexíu lærðirðu síðast? Að maður á ekki að kaupa dósaupptakara í Bónus, né kveikjara.
Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn? Æj, eru ekki allir merkilegir óuppgötvaðir listamenn á Íslandi?
Hvar er draumurinn? Ég sé drauminn minn mjög skýrt fyrir mér, hann er bara hér og er að rætast. Þannig að ég er í draumnum og það er yndislegt.
Ljósmyndari tekur portrett-mynd af þér - hvað væri hinn fullkomni bakgrunnur?
Gamla gólfteppið hjá ömmu í Rjúpufellinu.
Gott sparnaðarráð í kreppunni: Borða minna, tala meira.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Ég hef horft á allar seríur af Gossip Girl, ekki vegna þess hversu góðir þættir þetta eru heldur einfaldlega vegna þess að ég er yfir mig ástfangin af karakternum Blair Waldorf.
Hver er eftirminnilegasta matarminningin? Þegar ég var úti á Bahamas fékk ég að smakka nokkuð sem heitir Conch salat. Einstaklega fallegt á litinn og rótsterkt. Ég hef ekki hugmynd um í dag hvað var í því, en djöfull var það gott.
Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?
Ugla Egilsdóttir er merkileg, ég hef tekið nokkur ansi góð fyllerí með henni.
Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?
Ég hata og hef alltaf hatað þennan leik. Neita að svara þessu.
Hvaða tónlist hæfir tímunum? Gott eftirpartýslag sem er svo uppfullt af eymd og tómleika. T.d. eins og lagið „Archangel“ með Burial.
Besti brandari sem þú hefur heyrt? Hvað sagði fíllinn þegar hann sá allsberan mann í fyrsta skipti? Vóhóhó hvernig í andskotanum geturðu andað með þessu??? |