| Prentað mánudaginn 20. maí kl. 04:57 af www.kistan.is |
1. apríl 2010 16:41 |
Angela Rawlings |
|
Síðasta bók sem hafði áhrif: Notes for Soloists eftir Cia Rinne. Cia las megnið af bókinni á ljóðahátíð Nýhiljar 2009 og bæði þessi útpældi performans og þétta margtyngi gerðu mig agndofa. Kvikmynd sem snerti taug: Svo margar. Franska myndin Ponette frá 1996, japanska myndin Handanlífið (Wandafuru raifu), heimildamynd Peter Greenaway um Meredith Monk, Heima SigurRósar, The Big Lebowski Coen-bræðra, Strictly Ballroom Baz Luhrmanns ... akkúrat núna er það semt helst The Princess Bride sem snertir taug og hressir mitt veika sjálf a la Fred Savage. Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni? Ég eftirlæt Miyazaki Hayao þá ákvörðun.
Umhverfishljóð, upptökur af úlfum, öldum og álfum.
Uppáhaldsljóðskáld: Ég held sjaldnast upp á skáld, en sum ljóð sækja mig oft heim. Í augnablikinu sækir „Í helli tilraunadýrsins“ eftir Aase Berg á mig. Hér má finna enska útgáfu ljóðsins. http://www.conduit.org/online/aase/aase.html Fides Krucker, raddþjálfarinn minn í Toronto. Hún kenndi mér að blómga rassinn, spöngina og píkuna til þess að slaka á grindarbotnsvöðvuum og skapa meira pláss fyrir raddböndin að njóta sín. Hvaða lexíu lærðirðu síðast? Síðast lærði ég að blanda ginkgo biloba-saft. „Setjið 15-20 dropa í lítin bolla af vatni, þrisvar á dag, kortéri fyrir máltíð. Framleiðið munnvatn áður en þið gleypið.“ Apis Mellifera Linnaeus. Snæfellsnes, hugsanlega Bjarnafoss eða Kirkjufell. Á Snæfellsnesi, hugsanlega að Bjarnafoss eða Kirkjufelli. „Get pissed off, not piss-drunk.“ Ég prófaði einu sinni tuttugu mismunandi hunangstegundir á átta mínútum; ofskynjanir og ör hjartsláttur fylgdi í kjölfarið. Og svo var það matnægingin sem súkkulaðibúðingurinn í Béziers, Frakklandi, olli ... Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með? Elskhuga. Hvaða tónlist hæfir tímanum? Blandaður play-listi sem kallast „Fólk, jú!“ Þar má finna I See the Sign með Samidon, Have One On Me með Joanna Newsome og Heartland Owen Pallett, með góðum skammti af The Be-Good Tanyas, Grizzly Bear og Amidon's Bedroom Community og löndum þeirra Daníeli Bjarnasyni, Ben Frost, Nico Muhly og Valgeiri Sigurðssyni. Hvar er ástin? Ég er of feimin til þess að tala miklu íslensku upphátt enn sem komið er (æ, þessi skelfilegi kanadíski hreimur) þótt ég myndi setningar og hvísli þeim að gæludýrum og plöntum þegar enginn annar er nálægt. Kötturinn Steingrímur hefur fengið að heyra nóg af ástarjátningum nýlega. ----------------------------------------- Rétt er að benda einnig á enska útgáfu viðtalsins sem finna má á enskumælandi systursíðu Kistunnar, Culture Smuggling. |