Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 11:18 af www.kistan.is
21. maí 2010 18:07

Kári Tulinius

Kári Tulinius sendi í vikunni frá sér sína fyrstu skáldsögu, Píslarvottar án hæfileika, sem kom út hjá Forlaginu. Hann hefur stundað nám í bókmenntafræði í HÍ og í Bandaríkjunum en tók sér frí til þess að skrifa bókina, en hefur nú tekið upp þráðinn aftur og vinnur að BA-ritgerð.

Síðasta bók sem hafði áhrif:

The Museum of Eterna's Novel eftir Macedonio Fernandez

Kvikmynd sem snerti taug:
Þær eru svo margar. Ég verð að viðurkenna að ég á það til að vökna í bíói. Sjaldan sem ég græt beinlínis. Svakalegasta táraflóð sem ég man eftir var á The Fountain eftir Darren Aronofsky.


Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?

Fred Astaire. Ef hann er ekki til í það, þá James Brown.


Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta?

Hljómsveitin Skakkamanage kemur fyrir í bókinni, vitnað er til Happy Mondays og nefndar eru Lykke Li og Bessie Smith. Það er allt ágætir listamenn til að hafa í eyrunum við lestur. Einkunarorð bókarinnar eru sóttar í smiðju Billy Braggs, þannig kannski best að byrja á því lagi.


Minnistæður kennari:
Það eru ófáir kennarar sem mér eru minnistæðir. Af öðrum ólöstuðum þá vil ég nefna Snjólaugu Sigurjónsdóttur, fyrsta kennarann minn í Ísaksskóla. Hjá henni lærði ég að lesa, og lesa mér til ánægju, sem er einhver sú besta gjöf sem nokkur hefur fært mér.

Hvaða lexíu lærðirðu síðast?
Að tvær klukkustundir eru ekki nægur tími til þess að útvatna saltfisk.

Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?
Mér finnst það hljóta að vera svo að merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn sé einhver sem dó fyrir mörgum öldum og verk hans eða hennar séu grafin í eyðimörk eða liggi á hafsbotni.

Hvar er draumurinn?
Í heilanum.


Ljósmyndari tekur portrett-mynd af þér - hvað væri hinn fullkomni bakgrunnur?

Einhyrningspegasus í loftbardaga við dreka með ljónshöfuð.

Gott sparnaðarráð í kreppunni:
Ekki eiga bíl.

Uppáhaldspíslarvotturinn?
Langalangafi minn sem dó þegar hann sigldi með Hannes Hafstein til að ganga um borð í enskan togara sem var við veiðar í Dýrafirði í íslenskri lögsögu.

Hver er eftirminnilegasta matarminningin?
Þó mér þyki matur góður þá sitja máltíðir ekki mjög í minningunni. Það er frekar að ég muni eftir því að búa til mat. Það var mér mjög eftirminnilegt, til dæmis, þegar mér tókst að búa til virkilega gott mexíkanskt molé.


Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?

Þegar maður er fullur finnst manni allir þeir sem maður drekkur með stórmerkilegir.


Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?

Ha ég? Ekki satt! Það var Jón sem stal kökunni úr krú... bíddu, rangur leikur.

Hvaða tónlist hæfir tímunum?
Öll tónlist sem hrærir við manni eða fær mann til að hreyfa sig. Lagið sem ómar í kolli mínum þessa daganna er útgáfa Wye Oak
af gamla Kinks laginu Strangers
.

Ertu sammála skoðunum sögupersóna þinna?
Ekki alltaf.


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta