Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 12:46 af www.kistan.is
9. júlí 2010 11:01

Hjálmar Einarsson

Hjálmar Einarsson er leikstjóri bíómyndarinnar Boðbera, sem frumsýnd var í vikunni. Hann lærði kvikmyndagerð í kvikmyndaskólanum FAMU í Tékklandi, þar sem hann lærði meðal annars hjá kviðmági Joseph Göbbels.

Síðasta bók sem hafði áhrif:

This Way for the Gas, Ladies and Gentlemen eftir Tedeusz Borowski.

 

Kvikmynd sem snerti taug:

Fílamaðurinn eftir David Lynch. Hún snertir mann við hvert áhorf.

 

Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?

Enginn. Hún verður teiknimynd.  

 

Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta?

Dirt með Alice in Chains eða álíka Redneck rokk.

 

Minnistæður kennari:

Hin umdeildi tékkneski leikstjóri Otakar Vávra. Hann var 93 ára þegar hann kenndi mér og notaðist við stækkunargler. Maðurinn gerði myndir fyrir stríð, í stríðinu og á kommatímum. Hjákona Göbbels var kærastan hans um tíma og maðurinn varð síðar yfirpáfi kommana um hvaða myndir voru æskilegar og hverjar ekki. Hann gerði margar stórmyndir og notaðist við heilu herdeildirnar og þúsundir kolanámuverkamanna sem aukaleikara í hans stærstu mynd, eða um 100 þúsund manns. Maðurinn er lifandi goðsögn en um leið hataður af þeim leikstjórum sem hann lét bannfæra. Hann er samt stór áhrifavaldur í kvikmyndasögu Tékka.

 

Hvaða lexíu lærðirðu síðast?

Að kýla á hlutina og að treysta ferlinu.

 

Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?

Þeir eru margir, þar sem menningarklíkusamfélagið heldur þeim niðri í öllum listgreinum. Það þarf að endurskoða allt styrkjakerfi á Íslandi – í öllum greinum.

 

Hvar er draumurinn?

Í draumi sérhvers manns er fall hans er falið.

 

Ljósmyndari tekur portrett-mynd af þér - hvað væri hinn fullkomni bakgrunnur?

Himinn og haf með fjalli í fjarska. Á Íslandi eru þúsund afbrigði af bláu. Meira að segja skuggarnir eru bláir hérna.

 

Gott sparnaðarráð í kreppunni:

Bakaðar baunir.

 

Hver er eftirminnilegasta matarminningin?

Bakaðar baunir, svart kaffi og tvær línur af neftóbaki. A la Brúna blandan.

 

Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?

Það er Nick vinur minn í Prag. Hann slátraði 24 hálfslítra bjórum, reyndar á löngu fylleríi. Það þótti mér merkilegt.

 

Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?

Eyddi þeim í bíómynd en sagði svo svart og fékk ekki neitt.

 

Ertu sammála skoðunum sögupersóna þinna?

Alls ekkert alltaf. Rithöfundar verða að geta nauðgað móður sinni, drepið föður sinn og svikið fósturjörðina. Sögur verða að hafa conflict.

 

Hvaða tónlist hæfir tímunum?

Það þýðir ekkert spyrja mig að þessu þar sem ég er staðnaði í tónlist fyrir um tuttugu árum. Ég hlusta ennþá á grugg og geng í skógarhöggsskyrtum.

 

Að lokum:

Kreppan er besti áburður grasrótarinnar.

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta