| Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 02:35 af www.kistan.is |
6. desember 2007 11:33 |
Gunnar Sigvaldason |
Gunnar Sigvaldason, heimspekingur
|
Bók sem hafði áhrif: Litbrigði jarðar og Land og synir drápu næstum bókmenntaáhuga minn í grunnskóla og það tók mig tvö ár að jafna mig.
Ljóðskáld tuttugustu aldarinnar: Skáldin eru nokkur en eitt uppáhaldsljóðið mitt er um barnamorðingjann Maríu Farrar eftir Brecht í þýðingu Halldórs Laxness.
Kvikmynd sem snerti taug: Ég er af síðustu kynslóðinni sem fékk að alast upp við myndir Krzysztof Kieślowskis og ég slepp aldrei undan Bláum.
Minnistæður kennari: Breski kvekarinn Nigel Dower.
Besta kaffið í Reykjavík: Kaffið sem Gunnar Þorri gerði fyrir mig á Framnesveginum. Úff, hvað ég sakna mannsins.
Eftirlætis staður: Baðkerið heima hjá mér.
Ég hlusta á: Arcade Fire þegar mig langar til Kanada, Morrissey og Coltrane þegar mig langar annað.
Hefur lífið einhvern tilgang? Mitt líf, já.
Er menning til? Laugardagslögin gefa svo sannarlega misvísandi skilaboð en ég er hallur undir þá skoðun. |