Prentað föstudaginn 24. maí kl. 13:49 af www.kistan.is
22. október 2009 07:00

Þröstur Helgason

Þröstur Helgason sér um að gagnrýna bækur fyrir útvarpsþáttinn Víðsjá á Rás 1, auk þess sem hann er bæði stundarkennari og doktorsnemi við Háskóla Íslands.

Loks er svo nýkomin út bókin samtöl Matthíasar Johannessen, en Þröstur sá um að velja viðtölin í bókina og ritaði inngang. Einhverjir lesendur muna svo sjálfsagt eftir honum sem ritstjórnarfulltrúa Lesbókar Morgunblaðsins.

 

Síðasta bók sem hafði áhrif:

Nokkur almenn orð um kulnun sólar eftir Gyrði Elíasson vegna þess að hún talar til okkar hér og nú.


Ljóðskáld 20. aldar:

Ég gæti nefnt Paul Celan, ég gæti nefnt Ginsberg og Neruda, en ég gæti líka nefnt um það bil hundrað önnur skáld - þetta er algerlega vonlaus spurning.

 

Kvikmynd sem snerti taug:

Gaukshreiðrið; sá hana aftur á RIFF í haust og komst að því að hún fjallar um Ísland í dag, þetta er sagan um strákinn í Nýju fötum keisarans sem bendir á nekt keisarans, hann er auðvitað óæskilegur, sprautaður niður, sannleikurinn er kæfður í samfélaginu; þannig var það á uppgangstímanum íslenska, þeir sem bentu á nekt keisarans voru þaggaðir niður en höfðu auðvitað allan tímann rétt fyrir sér; í myndinni er McMurphy (Nicholson) þessi drengur; og indjáninn í myndinni sem hefur þagað þunnu hljóði er auðvitað íslenskur almenningur; á endanum sleppur hann út af hælinu ... þið ráðið sjálf í það hver hjúkkan ógurlega er ...

 

Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?

Jack Nicholson, auðvitað!

 

Minnistæður kennari:

Matthías Viðar Sæmundsson, stofnandi Kistunnar og dósent við HÍ; magnaður kennari, óvenjulegur maður, þeir sem hlustuðu urðu ríkari.


Hvaða lexíu lærðirðu síðast?

Ég man það ekki.

 

Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?

Fólk er almennt ekki búið að átta sig á því hvað Birgir Andrésson var stórkostlegur listamaður.


Hvar er draumurinn?

Í núllinu.


Gott sparnaðarráð í kreppunni:

Hætta að spila golf.


Hver er eftirminnilegasta matarminningin?

Seðjun magans er algleymisástand.


Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?

Ég drekk ekki.


Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?

Keypti mér blaðvedsa, Ping! 47, 54 og 60 gráður. Nú er þetta ekki spurning um neinar prósentur, negli þetta allt saman upp við stöng.


Hvaða tónlist hæfir tímunum?

Tom Waits! Ekki spyrja svona asnalega.

 

Hvers viltu spyrja?

Þessa vil ég spyrja: Af hverju eru bara spurningar en engin svör?

 

 

 

 

 

 

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta