Prentað mánudaginn 20. maí kl. 21:18 af www.kistan.is
30. október 2009 13:26 (1 lesandi hefur sagt álit sitt.)

Ásthildur Valtýsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ásthildur Valtýsdóttir er  ferðalangur með 3 háskólapróf og einbeittan ásetning um að njóta lífsins.

 

Síðasta bók sem hafði áhrif:

The Spell of the Sensous: Perception and Language in a more-than-human World eftir David Abram. Ég var með gest um daginn sem var alltaf að segja mér að ég bara yrði að lesa þessa bók. Síðan þá hef ég haft það á tilfinningunni að bókin eigi eftir að gefa mér góða byltu og ég verði aldrei sú sama. Á sama tíma er ég samt hrædd um að verða fyrir vonbrigðum. Ég er að hugsa um að versla mér bókina á Amazon en þori því eiginlega ekki. Þetta er mjög taugatrekkjandi ástand.

Kvikmynd sem snerti taug:
Aguirre: the Wrath of God
eftir Werner Herzog. Þegar ég sá hana var ég einmitt að lesa sögulegu skáldsöguna Ursúa eftir William Ospina sem fjallar um ævintýri Pedro Ursúa í „Nýja heiminum“ (Ursúa var einmitt hengdur í Aguirre-myndinni og konan hans gekk á eftir mannætunum inn í
skóginn). Ég taldi mig því vel undirbúna til að horfa á mynd um ævintýramanninn Aguirre. Eftir myndina var ég hins vegar á því að innrásarmennirnir hafi verið geðsjúklingar frekar en ævintýramenn. Kvikmyndinni og bókinni sló saman með það miklu afli að stundum, og þá sérstaklega seint á kvöldin, fer ég að hugsa um afdrif hestsins sem skilinn var eftir við bakka Amazon. Átakanlegt atriði.

 

Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?

Fermina Daza.

 

Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta?

Ef markmiðið er að gleyma senunni með hestinum þá dugar ekkert minna en að hlusta á litlu músina Pílu Pínu sem langaði til að ferðast.

Minnistæður kennari:

Ástin.

Hvaða lexíu lærðirðu síðast?

Ég er enn að læra að anda rétt.

Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?

Ætli það sé ekki bara ég.

Hvar er draumurinn?

Í hjartanu.

 

Gott sparnaðarráð í kreppunni:

Að tileinka sér einfaldleikann.

Hver er eftirminnilegasta matarminningin?

Ég fékk einu sinni matareitrun í Perú og gat bara borðað súpur. Þegar ég var sem veikust fórum við maðurinn minn í skoðunarferð sem endaði á fínum veitingastað upp í fjöllum. Hann fékk sér steiktan naggrís og ég, sem var búin að kveljast af magaverkjum alla skoðunarferðina, hágrét ofan í súpuna mína af því að mig langaði líka í naggrísinn (sbr. sorgsvipinn á meðfylgjandi mynd). Önnur eftirminnileg minning er bragðið af steiktum risamaurum sem var einhverskonar blanda af mold og sviðinni húð með örlítið af salti.

 

Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?

Minn ektamaður. Annars held ég að það fólk sem mér finnst merkilegast detti ekki í það. Að detta í það er bara fyrir fólk sem hefur ekki hugmyndaflug í að gera eitthvað skemmtilegra (Tek það fram að ég er ein af þeim sem er ekki með nógu gott hugmyndaflug).


Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?

Ég mun örugglega spara hann til dauðadags.

Hvaða tónlist hæfir tímunum?
Möntrur eru tæki til umbreytingar og í dag er tími fyrir breytingar.


Hverju viltu spyrja lesendur að?

- Hvar er heimsendir amma?
- Hvað er eilífðin, mamma?
- Pabbi, af hverju vex á þér skegg?


Til baka



ÁLIT LESENDA

hvað er að frétta gjemle? (12. ágúst 2010, kl. 23:41)

þetta er nú saga að segja frá ásthildur:) hvaða fýlusvipur er þetta á neðri myndinni ?

ingvar ingvarsson

 


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta