| Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 14:35 af www.kistan.is |
13. nóvember 2009 09:26 (1 lesandi hefur sagt álit sitt.) | ||||||
Brynja Bjarnfjörð | ||||||
Brynja Bjarnfjörð er bókmenntafræðingur, sjúkraliði og nemi, tvíeggja tvíburi í tvíburamerkinu „með klofin persónuleika og menntaáhuga“ að eigin sögn. | ||||||
Síðasta bók sem hafði áhrif: Aldrei aftur meðvirkni – afskaplega holl og góð lesning fyrir stjórnsaman meðvirkil. Kvikmynd sem snerti taug: The Notebook – grét yfir henni og hugsaði til alzheimerssjúklinganna sem ég var að annast á þeim tíma. Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni? Tinna Gunnlaugsdóttir mun ná að túlka fegurð mína og dramatíska tilvist. Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta? Færeyska og íslenska tóna Friðriks Ómars og Jógvans og hugsa um hvernig þetta myndi lesast á færeysku. Minnistæður kennari: Guðbjörg Aðalbergsdóttir, íslenskukennarinn minn úr FS og núverandi skólameistari í Mosfellsbæ. Hún kveikti í mér bókmenntafræðiáhugann. Hvaða lexíu lærðirðu síðast? Að það sem þú segir niðri á Tanga verður komið upp í hverfi á undan þér. Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn? Atli Rúnar Tómasson (ART) – frændi minn sem málar stórkostleg málverk um risaeðlur og börn þeirra. Hvar er draumurinn? Hann má finna í Bandaríkjunum í Mall of America. Bara að kaupa sér drauminn og lifa svolítið 2007. Gott sparnaðarráð í kreppunni: Ekki hræðast svínakjöt, skella sér á afsláttarkjötið í Krónunni. Hver er eftirminnilegasta matarminningin? Uppgötvun mín með að hræra jólaköku út í kaffi og borða með skeið. Amma Njóla var dyggur stuðningsmaður minn í þessum framkvæmdum þegar ég var 6 ára. Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með? Kvenkyns morðingi sem ég hitti á Grand Rokk forðum daga. Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér? Borgaði niður skuldir íslenska ríkisins og splæsti svo í heimsreisu fyrir mig og saumaklúbbinn.
Hvaða tónlist hæfir tímunum? Ekkert rafmagnsvæl, bara klassíkerarnir með dramatískar sinfóníur. Ef prump hefði lit, hvernig væri þitt? Mitt prump væri fjólublátt með glimmeri.
| ||||||
| ||||||