| Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 04:53 af www.kistan.is |
20. nóvember 2009 09:33 |
Vera Sölvadóttir |
|
Síðasta bók sem hafði áhrif: La Maladie de la mort (The Malady of Death) eftir Marguerite Duras.
Kvikmynd sem snerti taug: Soy Cuba eftir Mikhail Kalatozov og L'eclisse (Myrkvi) eftir Antonioni. Tökurnar eru hrein snilld í báðum myndum og Monica Vitti er dásamleg í seinni myndinni. Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni? Litla systir.
BB&BLAKE. Minnistæður kennari: Jói stærðfræðikennari sem kom mér í gegnum MH og kona sem kenndi mér um Amerískar bíómyndir í Frakklandi. Hún var alveg eins og Anjelica Huston í The Addams Family. Ég held að hún sé alvöru norn. Hvaða lexíu lærðirðu síðast? Að tíminn er naumur. Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn? Ég hef ekki uppgötvað hana/hann enn. Hvar er draumurinn? Bara hér. Gott sparnaðarráð í kreppunni: Að eiga ekki bíl og nota sundkortið. Hver er eftirminnilegasta matarminningin? Þegar ég var pínd til að boða sojakjöt sem mér fannst ekki gott upp í sveit sem krakki.
Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með? Ég lenti í þrítugsafmæli Chloe Sevigny með vinum mínum fyrir nokkrum árum. Þar var voða mikið af frægu fólki. Okkur vinunum þótti það afar merkilegt þá... Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér? Gaf út plötu. Hvaða tónlist hæfir tímunum? BB&BLAKE og öll sú tónlist sem fólki langar til að hlusta á. Ætlar þú að gefa einhverjum BB&BLAKE plötuna í jólagjöf? Já það ætla ég svo sannarlega að gera. |