Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 04:54 af www.kistan.is
27. nóvember 2009 09:33

Jón Bjarki Magnússon

Jón Bjarki Magnússon er framkvæmdastjóri Nýhils, nemandi í ritlist og heimspeki við Háskóla Íslands og óforbetranlegur heimshornaflakkari. Þá kunna einhverjir að kannast við hann sem litla DV-manninn, en héðan í frá verður hann auðvitað alltaf þekktur sem litli Kistulúðinn.

Síðasta bók sem hafði áhrif:

Högg á vatni eftir Hermann Stefánsson. Hún var tölusett númer 16 af hundrað, nú finnst mér ég loksins kominn í menningarelítuna.

 

Kvikmynd sem snerti taug:

Börn, ég er svo viðkvæmur fyrir hjartnæmum fjölskyldusögum handrukkara í tilvistarkreppu.

 

Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?

Vinur minn, Sigurður Eyþórsson kvikmyndagerðarmaður, ásamt Almitru, konunni sem gengur heiminn.

 

Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta?

Örlög og viðlög með hljómsveitinni Hagkvæm skemmtun í núinu.

 

Minnistæður kennari:

Skúli Gunnarsson, umsjónarkennarinn minn í seinni bekkjum grunnskóla, gull af manni. Og auðvitað Sigurður Pálsson, bene bene.

 

Hvaða lexíu lærðirðu síðast?

Að skila skattaskýrslunni á réttum tíma.

 

Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?

Ljóðskáldið, gjörningalistamaðurinn, Strandamaðurinn og lífskúnstnerinn, Trausti Breiðfjörð Magnússon, sem er afi minn.

 

Hvar er draumurinn?

Niðursoðinn og innpakkaður í Ora dós sem liggur í einhverri hillu hér í borg, stefni á að finna hana.   

 

Gott sparnaðarráð í kreppunni:

Skjóta litla fugla (rjúpur) og snúa þá úr hálslið séu þeir ekki alveg dauðir, borða svo á jólunum, ef það á ekki við þig, þá má alltaf sækja sér veislumat úr ruslagámum fyrir utan verslanir.

 

Uppáhaldsdagblaðið:

litla Dé Vaff, sem er vonandi væntanlegt.

 

Hver er eftirminnilegasta matarminningin?

Þegar ég kom fyrst inn í hirðingjatjald í Mongólíu og var boðið upp á áfenga kapla (hesta) mjólk. Ég vildi sýna þessum gestrisnu höfðingjum virðingu og þambaði því úr skálinni. Drykkurinn var súr og kekkjóttur, tíu mínútum seinna lá ég úti á sléttu og ældi ósköpunum.

 

Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?

Landbúnaðarráðherra Mongólíu, sá gat ekki hætt að tala um Guðna Ágústsson og íslenskt brennvín á milli þess sem hann skoraða á mig og félaga minn í glímu.

 

Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?

Þegar hún gaf mér peninginn var hún gjaldkeri í KB- Banka, nei ég meina Kaupþingi, nei ég meina Arion, bíddu, hver var aftur spurningin?

 

Hvaða tónlist hæfir tímunum?

Allt sem Godspeed You! Black Emperor hefur látið frá sér.

 

Vinnurðu að bók um ástæður og afleiðingar hrunsins?

Já, hvort ég geri, ég hef undanfarið ár setið í stjórn Nýhils undir fölsku flaggi, í bók minni kemur meðal annars fram að Nýhil sé, eins og marga grunaði, einn stærsti orsakavaldur hrunsins. Ba Bamm!

 

Af hverju samþykktirðu að vera Kistulúði vikunnar?

Ég hef heyrt að fólk hössli alltaf helgina eftir að það var Kistulúði. Ég verð á Næsta bar á laugardagskvöldið klukkan kortér í þrjú á borðinu við gluggann, hægra megin, með Síðustu ljóðabók Sjóns í höndunum.

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta