| Prentað mánudaginn 20. maí kl. 00:55 af www.kistan.is |
4. desember 2009 11:28 |
Birta Fróðadóttir |
|
Síðasta bók sem hafði áhrif: The Tibetian Book of Living and Dying eftir Sogyal Rinpoche, bók sem gefur algerlega nýja sýn á tilveruna. Kvikmynd sem snerti taug: Heimildamyndin Wild Combination eftir Matt Wolf, fjallar um ævi tónlistarsnillingsins Arthur Russel og uppáhaldsmyndin mín, Don´t Come Knocking eftir Wim Wenders.
að sjálfsögðu Grace Jones. Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta? Lazare með Principles of Geometry og þú kemst í elektrónískt bliss. Minnistæður kennari: Anthony Dubovsky við Berkeley háskóla, gráskeggjaður gyðingur með banjó í annari hendi og ávalt tómt rauðvínsglasið í hinni. Hann kenndi Songs and Places sem gékk út á að teikna og mála út frá Amerískum blús og þjóðlagatónlist ... og drekka rauðvín. Hvaða lexíu lærðirðu síðast? Yfirþyrmandi þakklæti fyrir að vakna á hverju degi hraust og heilbrigð. Einnig hef ég nýlega lært að ekki er æskilegt að leggja af stað í langt ferðalag föstudaginn 13. Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn? Bjartur Konungur. Hvar er draumurinn? Kemst ekki að því fyrr en hann rætist. Gott sparnaðarráð í kreppunni: Nota Morgunblaðið sem skeinispappír.
Að tyggja hálfdauð hornsíli í sushi á færibandi í Tókýó. Vinnurðu að bók um ástæður og afleiðingar hrunsins? Nei, hvorki bók né mynd. Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með? Tveir ónefndir afar prúðklæddir menn, annar trommuleikari og hinn skáld sem gömnuðu sér við að lyfta bíl á þversum yfir þrönga götu í Kaupmannahöfn, svo bíllinn (sem var í eigu fatlaðs einstaklings) hvorki komst áfram né afturábak. Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér? Hætti á atvinnuleysisbótunum og fór í ferðalag mörgum sinnum í kringum hnöttinn. Hvaða tónlist hæfir tímunum? Hamfarir með Gunnari Jökli. Hvað er spennandi að gerast í kvöld? SÍÐASTA SÝNING á heimildamyndinni RAJEEV REVISITED í REGNBOGANUM KL 18. Einstakt tækifæri til að sjá þessa ljúfsáru mynd um vináttu sem nær yfir heimshöf og ólíka menningarheima. |