Prentað mánudaginn 20. maí kl. 03:51 af www.kistan.is
11. desember 2009 11:00

Óli Gneisti Sóleyjarson

Óli Gneisti Sóleyjarson er formaður Félags þjóðfræðinga og reynir að sannfæra fólk um að þjóðfræðin eigi erindi inn í heim nútímatækni með bókum eins og hinni nýútkomnu Eve Online: Leikir, sköpun og samfélög, sem hann vann upp úr MA-verkefni sínu. Sem er náttúrulega sérstaklega lúðalegt athæfi.

Síðasta bók sem hafði áhrif:

Mig fór að dreyma ansi sýrða drauma þegar ég var að lesa Nostradamus Ate my Hamster eftir Robert Rankin.

 

Kvikmynd sem snerti taug:

Footloose er án efa sú kvikmynd sem hefur mest áhrif á líf mitt. Hún fjallar um dreng sem kemur í smábæ og angrar prestinn með dansi. Síðan notar hann Biblíuna til þess að hrekja málflutning prestsins. Ég varð samt aldrei góður að dansa.

 

Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?

Gunzo úr Prúðuleikurunum. Hann er vissulega vanur að vera töluvert geðbilaður í sínum hlutverkum en hann sýndi hvað hann gat þegar hann lék Charles Dickens í Jólasögu Prúðuleikarana.

 

Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta?

Queen II með Queen. Þetta er proggaðasta plata Queen. Þarna leyfðu þeir sér að prufa allt sem þeir vildu, sömdu texta um málverk og flippuðu bara almennt út með frekar þungu rokki. Stórgóð og á köflum stórfyndin plata.

 

Minnistæður kennari:

Sigurður Ólafsson, heimspekikennari í Menntaskólanum á Akureyri, náði að fokka svoltið í hausnum á mér. Bæði með því að fá mig til að hugsa um hluti á nýjan hátt og með því að kenna mér að rökstyðja mál mitt betur. Við erum líka þremmenningar (sem ég nefndi ekki einu sinni í von um að fá betri einkunn) þannig að ég fékk sögur við eldhúsborðið hjá afa og ömmu af honum sem „Sigga litla sem var alltaf uppáhaldið hennar ömmu sinnar.“

 

Hvaða lexíu lærðirðu síðast?

Að ef maður býður ritstjóra Kistunnar í bíó þá fær maður ekki mikið þakklæti en er þess í stað settur í að ritdæma bækur um hrunið (en ekki þessa skemmtilegu með skopmyndunum samt), skaffa efni fyrir Kistulúðahornið og ferja bókakassa úr Reykjavíkurakademíunni yfir á heimili hans.

 

Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?

Það er án efa sonur minn Gunnsteinn Þór sem hefur náð markverðum árangri í ýmsum listgreinum. Á fyrstu mánuðum sínum náði hann til dæmis glæsilegum árangri í að skreyta baðherbergið okkar með frussprumpi.

 

Hvar er draumurinn?

Hann er í bankabók með mörgum milljónum. Eða kannski er hann bara að hafa tækifæri til að stunda einhverja fræðimennsku sem einhver hefur kannski áhuga á.

 

Gott sparnaðarráð í kreppunni:

Ég hef bakað mitt eigið brauð núna í svona hálft ár. Það er hræódýrt. Það tekur minni tíma en maður heldur. Það er gefandi. Það er miklu betra en búðarkeypt brauð. Best er samt að ef þú ert karlmaður þá finnst fólki það afskaplega merkilegt.

 

Hver er eftirminnilegasta matarminningin?

Þegar ég var tíu ára fór ég í viku á heimili systkina ömmu minnar í Axarfirði. Þar fékk ég hafragraut sem mér líkaði svo illa við að maginn gerði uppreisn og ég skilaði honum aftur á diskinn. Borðaði ekki hafragraut í svona fimmtán ár eftir. Geri það samt núna. Jömmjömm.

 

Vinnurðu að bók um ástæður og afleiðingar hrunsins?

Nei, en um daginn var ég spurður hvort að ég gæti ekki unnið einhvern fyrirlestur upp úr meistaraverkefninu mínu sem kæmi einhvern veginn að þessum málum. Meistaraverkefnið mitt fjallaði um samfélag tölvuleiksins Eve Online frá þjóðfræðilegu sjónarhorni (Eve Online: Leikir, sköpun og samfélög fæst í öllum helstu bókabúðum). Ég ákvað að afþakka það tilboð.

 

Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?

Sjálfur dett ég ekki í það en ég held að John Hume sem fékk Friðarverðlaun Nóbels fyrir starf sitt í þágu friðar á Norður Írlandi hafi reynt að móðga mig blindfullur á ráðstefnu þjóðfræðinga í Derry í fyrra. Það var ákveðinn toppur. Hann söng síðan Danny Boy eftir að hafa dregið í tombólunni. Ég tók líka myndina af honum sem er notuð hjá Wikipediu.

 

Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?

Keypti smáskífuna Já og nei með hljómsveitinni Svart/hvítur draumur. Eða þvottavél með innbyggðum þurrkara.

 

Hvaða tónlist hæfir tímunum?

Ég held að við heyrum ekki nóg af færeyskri tónlist þannig að ég mæli með færeyskri hljómsveit sem heitir Týr. Sú hefur gefið út nokkuð margar plötur síðan hún sló í gegn fyrst á Íslandi.

 

Hver er sagan á bak við þinn fallega skeggvöxt?

Ég er glaður að þú spurðir. Fyrst þegar ég byrjaði að fá skegg þá sagði afi minn mér heitinn að þetta væru nú bara kuntuhár. Ég bað hann um að útskýra fyrir mér hvað kunta væri og hann fór dulítið mikið hjá sér. Ég lét mér fyrst vaxa skegg þegar ég var 16-17 ára gamall en rakaði það af þegar fólk tók ekki eftir því. Síðan kom í ljós fyrir rúmlega sjö árum að ég gat látið vaxa mér skegg og ég hef haft það síðan. Núna hef ég síðan leyft því að síkka vel og vandlega þannig að fólk stoppar mig út á götu til að dást að því. Mig vantar samt almennilegar teygjur til að beina skegginu í réttar áttir.


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta