| Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 19:42 af www.kistan.is |
18. desember 2009 11:00 |
Þórhildur Ólafsdóttir |
|
Síðasta bók sem hafði áhrif: Það er alltaf sú sama, bókin sem hef lesið ár hvert síðan ég var krakki; Bróðir minn ljónshjarta. Kvikmynd sem snerti taug: Ég veit að náttúrudýralífsþættir Attenboroughs eru ekki kvikmyndir, en þeir snerta mig alltaf djúpt. Svo var District 9 góð enda er ég geimveruáhugamanneskja.
Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni? Eitthvert óuppgötvað leikaraunglamb mun slá í gegn sem ég einn daginn. Ekki annað hægt með slíkan efnivið.
Skellið bara Kylie Minogue á. Fólk ruglar mér oft saman við hana.
Minnistæður kennari: Þeir eru margir, ég hef verið rosalega heppin með kennara og þeir hafa haft jákvæð og góð áhrif á mig sem manneskju. En það sem Lóa (Ólafía Þórdís Gunnarsdóttir) kenndi mér í samfélagsfræði og námstækni í grunnskóla Eyrarsveitar hefur verið mér sá grunnur sem ég hef byggt mikið á í öllu mínu námi.
Hvaða lexíu lærðirðu síðast? Ef þú ætlar að ganga upp á 3700 metra hátt fjall vertu þá í formi.
Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn? Víkingur Kristjánsson, leikari og skáld.
Hvar er draumurinn? Hann er þarna úti. Mig dreymir um að gera ekkert annað í heilt sumar en að ganga í íslenskri náttúru og finna hann.
Gott sparnaðarráð í kreppunni: Sódastrím.
Hver er eftirminnilegasta matarminningin? Fyrsta sinn sem ég borðaði súran hval. Þegar þessi eðalfæða fékkst var hann stundum í matinn heima þegar ég var lítil. Ég hef aldrei verið eins staðráðin í því að láta mér líka jafn vel við mat sem bauð af sér jafn lítinn þokka. Það tókst. Súr hvalur er góður. Svo gleymi ég því aldrei þegar ég borðaði sushi í fyrsta sinn, 12 ára í New York.
Vinnurðu að bók um ástæður og afleiðingar hrunsins? Nei, en ég les þær allar. Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með? Ég reyni alltaf að vera edrú í kringum merkilegt fólk.
Ég segi alltaf nei, já, svart og hvítt og fæ ekkert frá henni.
Hvaða tónlist hæfir tímunum? Gimme Shelter með Rolling Stones. Dökkt og drungalegt. Og fáránlega svalt.
Er www.midjan.is málið? Já. |