Prentađ fimmtudaginn 23. maí kl. 23:58 af www.kistan.is
23. desember 2009 11:13

Wali Safi

Wali Safi hefur veriđ heilmikiđ í fréttum undanfarna mánuđi ţótt sjaldnast hafi nafn eđa mynd fylgt ţeim fréttum. Hann er hćlisleitandi og hefur ţetta ađ segja um uppruna sinn: „Ég er fćddur áriđ 1977 í austurhluta Afganistan. Ég hef lokiđ menntaskóla (High School) og var á öđru ári í viđskiptaháskóla ţegar ég neyddist til ţess ađ yfirgefa land mitt vegna hatramms stríđs, óöryggis og óréttlćtis. Ţađ hafa liđiđ nćrri tólf ár síđan ég var ţar síđast,“ segir Safi sem tekur fram ađ hann reyni ađ hugsa sem minnst um ţá slćmu reynslu sem hann hefur stundum mátt ţola bćđi í eigin landi sem og sem hćlisleytandi í Evrópu, oftast ađ hálfu yfirvalda.

Wali er mikill tungumálamađur, talar ensku, grísku, persnesku, hindí og pashto. Og hann er sannarlega sigldur, ţótt ferđalögin hafi sjaldnast veriđ á fyrsta farrými. „Ég hef komiđ til landa á borđ viđ Íran, Tyrkland og Grikkland, og á leiđ minni til Íslands heimsótti ég í styttri tíma lönd á borđ viđ Frakkland, Svíţjóđ og Noreg,“ segir Wali sem hefur búiđ á Íslandi síđan í júní áriđ 2008.

 

„Ég hef unniđ í lyfjaverslun og stórmörkuđum, ég var sjálfbođaliđi Rauđa hálfmánans í Afganistan. Ţegar ég bjó í Afganistan stundađi ég ýmsar íţróttir sem eru ekki vinsćlar í öđrum löndum. En ég hef gaman af ţví ađ hlaupa, synda og hjóla, og ég hef gaman af bíómyndum og tónlist.“ En hvert stefnir hann? „Draumurinn er ađ ljúka mínu ólokna námi og geta lifađ eđlilegu lífi í öryggi, ég held ađ sérhver manneskja verđskuldi ţađ.“

 

En nóg af almennum spurningum, nú er komiđ ađ lúđaspurningunum.

 

Síđasta bók sem hafđi áhrif:

Núna er ég ađ lesa bók um ćvi Fidel Castro eftir hann sjálfan og Ignacio Ramonet, en ef ég á ađ nefna einhverja fullkomna bók myndi ég nefna The Gadfly eftir Ethel Lilian Voynich. Hún fjallar um baráttu alţjóđlegs byltingamanns á Ítalíu.

 

Kvikmynd sem snerti taug:

Píanistinn, (The Pianist) ... ég held ađ orđ séu lítt til ţess fallinn ađ greina frá ţessari mynd Roman Polanski. En ég fíla hins vegar einfaldlega ekki óraunverumyndir á borđ viđ Avatar.

 

Hver leikur ađalhlutverkiđ í ćvisögunni?

Hver mun leika ţađ betur en ég sjálfur? Bíómynd lífs míns er enn í sýningu og ég er ađ leika sjálfan mig. Lífiđ er eins konar leikrit sem endar ţig viđ endum. En ef ég ţyrfti samt ađ velja einhvern annan myndi ég velja Wentworth Miller (einn ađalleikara Prison Break).

 

Hvađa plötu á lesandi ađ setja á fóninn á međan hann les ţetta?

Ég sting upp á safni panflaututóna eftir Gheorghe Zamfir, sérstaklega Einsamer Hirte, sem er einmitt jafngamalt mér og ég hef hlustađ á svo lengi sem ég man.

 

Uppáhaldsljóđskáld:

Ég hef veriđ ađdáandi ljóđskálda frá miđausturlöndum eins og Saadi (innsk. ritstjóra: og hér bregst ritstjóra ţýđingarnefiđ);

 

        of one essence  is the human race,

        thusly has creation put the base.

        one limb impacted in sufficient,

        For all others to feel the Mace.

        The Unconcern'd the Other´Pilght,

        Are but Brutes with Human Face

 

Minnistćđur kennari:

Eftirminnilegasti kennari lífs míns var fađir minn heitinn, hann var prófessor viđ lćknadeild.

 

Hvađa lexíu lćrđirđu síđast?

Lífiđ er fullt af óvćntum uppákomum, góđum og slćmum, en ţađ eru alltaf einhverjar leiđir til ţess ađ lifa af.

 

Merkilegasti óuppgötvađi listamađurinn?

Allir geta hugsanlega veriđ merkilegasti óuppgötvađi listamađurinn.

 

Hvar er draumurinn?

Draumurinn er í frelsinu.

 

Gott sparnađarráđ í kreppunni:

Hćtta ađ horfa á auglýsingar í sjónvarpinu.

 

Hver er eftirminnilegasta matarminningin?

Ţegar mér var bođiđ á veitingastađ til ţess ađ borđa humar í fyrsta skipti, ţađ var sannkallađur gamanleikur.

Hver er merkilegasti mađur sem ţú hefur dottiđ í ţađ međ?

Ég er ekki mikilvćgur einstaklingur, en eitt sinn var ég drukkinn og leit í spegil og sagđi viđ sjálfan mig: „Ţú ert fjandi drukkinn.“

 

Hvađa tónlist hćfir tímunum?

Venjulega hlusta ég á alls kyns tónlist, nema ţungarokk. En sú tónlist sem hćfir tímunum er ađ mínu mati róleg tónlist eins og tónlist Enyu.

 

Hvar sérđu sjálfan ţig eftir fáeina mánuđi?

Líf mitt er óútreiknanleg, ekkert er öruggt, alls stađar eđa kannski hvergi!

----------------------------------------------------------------

Rétt er ađ benda einnig á enska útgáfu viđtalsins sem finna má á enskumćlandi systursíđu Kistunnar, Culture Smuggling.

 


Til baka



SKRIFAĐU ÁLIT ŢITT

Fyrirsögn

Álit

Hvađ er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvađ er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta