Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 02:30 af www.kistan.is
8. janúar 2010 10:38

María Gestsdóttir

María Gestsdóttir vinnur hjá Forlaginu, er eilífðarstúdent í bókmenntafræðiskor HÍ, er með BA í spænsku og er sérstök áhugamanneskja um argentínskar og úrúgvæskar smásögur.

Síðasta bók sem hafði áhrif:

Bókin sem ég var að ljúka við – Harmur englanna eftir Jón Kalman Stefánsson. Það  er gaman að lesa bækur sem eru svo vel skrifaðar að maður les þær hægt til að geta notið þeirra lengur.

 

Kvikmynd sem snerti taug:

Myndin sem ég horfði á  í gær, Stand by Me, er mynd sem ég get horft á aftur og aftur. Ég get líka nefnt aðra mynd sem Rob Reiner leikstýrði, This is Spinal Tap. Hún snerti taug.

 

Hver leikur aðalhlutverkið  í ævisögunni?

Scarlett Johansson. Við erum jafn háar.


 

Hvaða plötu á lesandi að  setja á fóninn á meðan hann les þetta?

Rubber Soul með Bítlunum. Eða Revolver. Ég leyfi lesandanum að ráða.

 

Minnistæður kennari:

Anna Kristín Þórðardóttir, sem kenndi mér íslensku í grunnskóla, og Terry Gunnell, sem þá var enskukennari í MH. Tveir frábærir kennarar sem vöktu áhuga nemenda á námsefninu.

Hvaða lexíu lærðirðu síðast?

Að maður á stundum að  segja nei.


 

Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?

Heldur vonandi áfram að vera óuppgötvaður.

 

Hvar er draumurinn?

Hann er þarna, maður þarf bara að láta hann rætast.


 

Gott sparnaðarráð í  kreppunni:

Að kaupa heilan kjúkling á  tilboði, hluta hann sundur og frysta.

 

Hvort er Icesave-grísinn eða Icesave-kaffibollinn fréttamynd ársins?

Pass. Ég hef viðbjóð bæði á kaffi og svínum og Icesave reyndar líka.

Hver er eftirminnilegasta matarminningin?

Þegar ég smakkaði snigla í fyrsta skipti og pantaði mér annan skammt áður en ég var búin með  þann fyrsta. Aldrei hefði mér dottið í hug að þeir væru svona góðir! Iguanaeðlur, snákar og krókódílar eru hins vegar ekkert spes.


 

Vinnurðu að bók um ástæður og afleiðingar hrunsins?

Nei, en ég hlakka til að lesa skáldsögur næstu ára sem taka á efninu. 
 

Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?

Því betur sem maður þekkir manneskju, þeim mun merkilegri verður hún í huga manns. Svarið við spurningunni er því ég sjálf.

Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?

Ég borgaði allar Icesave skuldir Íslendinga til að losna við helvítis kaffibollamyndina sem birtist daglega í blöðunum.

Hvaða tónlist hæfir tímunum?

Crime of the Century með Supertramp. 
 

Skáldskapurinn eða lífið?

Lífið er skáldskapur.


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta