| Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 17:19 af www.kistan.is |
22. janúar 2010 09:59 |
Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir |
|
Síðasta bók sem hafði áhrif: Á undanförnum mánuðum eru það tvær bækur sem hafa haft áhrif á mig, Une vie eftir Guy de Maupassant sem skrifuð var á 19. öld og og Himnaríki og helvíti eftir Jón Kalman Stefánsson. Hvort tveggja bækur sem lýsa einstaklega vel umhverfi og hugarheimi persóna sem eru fangar sinnar samtíðar og aðstæðna. Kvikmynd sem snerti taug: In the Mood for Love eftir Wong Kar-Wai og svo verð ég að nefna að frábær túlkun Meryl Streep á Juliu Child kitlaði hláturtaugarnar rækilega í myndinni Julie and Julia. Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni? Franska gamanleikkonan Valérie Lemercier. Maður þarf að geta hlegið að lífi sínu. Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta? Terminal með Hjaltalín. Minnistæður kennari: Heiðurshjónin Kristján Eiríksson og Sigurborg Hilmarsdóttir, kennarar mínir í Menntaskólanum að Laugarvatni, eru tvímælalaust minnisstæðust. Þau juku áhuga minn á menningarlegri iðju sem Kistulúða sæmir, svo sem lestri góðra bóka og ljóða. Hvaða lexíu lærðirðu síðast? Að enginn verður óbarinn biskup. Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn? ...blundar í okkur öllum. Hvar er draumurinn? Á REM stiginu. Ljósmyndari tekur portrett-mynd af þér - hvað væri hinn fullkomni bakgrunnur? Einhversstaðar úti í íslenskri náttúru, helst á æskuslóðum mínum í Skaftafelli. Gott sparnaðarráð í kreppunni: Grjónagrautur og slátur. Ef menn vilja gera vel við sig í mat og drykk er upplagt fyrir vini að slá saman í kjarngott hráefni, elda saman og borða að franskra manna sið í að minnsta kosti sex klukkustundir. Sparar pening, sparar leiðindi og óþarfar hugsanir um kreppu. Hver er eftirminnilegasta matarminningin? Djúpsteiktir hanakambar í Brüssel, vatnaliljublöð í Lyon og svo mætti lengi telja. Vinnurðu að bók um ástæður og afleiðingar hrunsins? Hef ekki fengið þá flugu í hausinn ennþá, en hlakka þó til að lesa um kreppuna þegar aldarafmæli mitt fer að nálgast. Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með? Þeir eru margir, en merkilegastur er þó félagsskapurinn Óþokkarnir, vinkonur mínar úr menntaskóla. Hver gleðistund með þeim er merkisviðburður. Hver er uppáhaldsmyndin þín á frönsku kvikmyndahátíðinni? Ég get eiginlega ekki gert upp á milli myndanna sem ég hef séð, en Petit Nicolas er fyndin og skemmtileg. Myndirnar C’est pas moi je le jure! (Það var ekki ég, ég sver það!) og Khamsa (Verndargripurinn) eru báðar mjög góðar og sérlega vel leiknar. Það vakti athygli mína að börn leika aðalhlutverk í öllum þeim þremur myndum sem ég hef séð, en tvær síðarnefndu eru með öllu alvarlegri undirtón heldur en Petit Nicolas. Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér? Hjálpaði bágstöddum og fór í langa hnattferð. Hvaða tónlist hæfir tímunum? Melódramatísk. Hvaða myndir ætlar þú að sjá á frönsku kvikmyndahátíðinni? Úrvalið er gott og því af nógu að taka. Ég stefni að því að sjá sem flestar, er búin með þrjár og ætla örugglega að sjá Louise Michel, Coeurs (Hjörtun), Le Premier cri (Frumgráturinn) og Délice Paloma (Ljúfa Paloma).
|