Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 23:39 af www.kistan.is
5. febrúar 2010 10:00

Karen Dröfn Kjartansdóttir

Karen Dröfn Kjartansdóttir er bókmenntafræðingur sem vinnur á fréttastofu Stöðvar 2, en hún hefur áður skrifað bæði í Fréttablaðið og DV – svona þegar hún er ekki að detta í það með löggum í Helsinki.

 

Síðasta bók sem hafði áhrif:

Rússland Pútíns, bók sem kom út í frábærri íslenskri þýðingu í fyrra, eftir Önnu Politkovskaju fréttaritara í Rússlandi. Anna var myrt árið 2006. Lesi maður sér til á netinu um ýmislegt annað fólk sem hún nefnir í bók sinni – og vann einnig að því að uppræta spillingu í Rússlandi – kemst maður að því að mikið af því hefur hlotið sömu örlög hún.

Bókin segir frá fjölda fólks í Rússlandi og því sem það þarf að ganga í gegnum vegna stjórnhátta Pútíns en eins og Anna segir í bókinni þá hefur hann innleitt svokallaðan kúrekakapítalisma í bland við gamaldags harðstjórn sem tíðkaðist í Sovétríkjunum. Frásögn Önnu er mögnuð og lýsingarnar fallegar í ljótleika sínum. Þetta er ein af þeim bókum sem maður vill troða upp á alla.

 

Kvikmynd sem snerti taug:

Ég er ekkert sérlega vel að mér þegar kemur að vali á kvikmyndum en eigi ég að nefna þá stórkostlegustu sem ég hef séð þá er það einfaldlega Apocalypse Now! Ég man ekki eftir neinni annarri mynd sem ég hef  dáðst af eins og henni. Hún virkar eins og bókin, Heart of Darkness, maður upplifir söguna á nýjan hátt í hvert einasta sinn. Svo verð ég eiginlega að nefna íslensku myndina Veðramót eftir Guðnýju Halldórsdóttur, hún er bara svo góð og fór framhjá alltof mörgum.

 

Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?

Anna Paquin, það hefur engin framtennur eins og við.

 

Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta?

Mér finnst verkið Gymnopedia eftir Eric Satie alltaf eiga vel við mig. Annars finnst mér  að fólk geti skellt plötu með Le carnaval des animaux eftir Saint-Saëns á fóninn. Nú ef sú mikla fegurð og ró sem þessi verk kalla fram í hugum fólks truflar þá finnst mér óhætt að mæla með snilldarbandinu Boney-M nú eða fyrstu plötu eðalsveitarinnar Rage against the Machine. Þetta allt kemur mér í feikilegan fíling.

 

Minnistæður kennari:

Guðbjartur Hannesson frá Akranesi, ég get lofað honum að nú kann ég smá skil á kveðskap Egils Skalla-Grímssonar og svo hann Páll Skúlason aðstoðarskólameistari í Menntaskólanum á Laugarvatni – og já, fyst ég er farin að telja upp þá verð ég að nefna Hrein Ragnarsson og dóttur hans Hörpu Hreinsdóttur, frábærir kennarar bæði tvö. Og jú ein að lokum, hún Patricia Aylett sem leiddi mig inn í ævintýri hobbita og álfa löngu áður en þau voru kvikmynduð.

 

Hvaða lexíu lærðirðu síðast?

Sokkabuxur eru ekki nægilega góður skjófatnaður á Landeyjasandi.

 

Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?

Úfff  ég þekki alltof lítið af listrænu hæfileika fólki. Eða jú, fleiri mættu vita af hæfileikum Baldurs Hrafnkelssonar tökumanns á Stöð 2.

 

Hvar er draumurinn?

Nú, í svefnrofunum.

 

Ljósmyndari tekur portrett-mynd af þér - hvað væri hinn fullkomni bakgrunnur?

Laufgaður hlynur.

 

Gott sparnaðarráð í kreppunni:

Étið minna.

 

Hvernig bregstu við ef þú hittir ísbjörn á förnum vegi?

Athuga hvort þessi Sigurður Guðmundsson, lygalaupur og verslunarmaður á Akureyri, sé að eyða tíma lögreglu og fjölmiðla í vitleysu.

 

Hver er eftirminnilegasta matarminningin?

Hrefna sem ég át veitingastaðnum Þrír Frakkar og svo höfrungur á veitingastað á Akureyri. Þetta var matur fyrir guði.

 

Vinnurðu að bók um ástæður og afleiðingar hrunsins?

Nei!

 

Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?

Geir Jón Þórisson lögreglustjóri, en hann hitti ég á bar út í Helsinki fyrir nokkrum árum. Mér finnst hann óskaplega merkilegur.

 

Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?

Eyddi honum í fallegt nýuppgert bárujárnshús.

 

Hvaða tónlist hæfir tímunum?

Verk Shostakovich.

 

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta