Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 01:39 af www.kistan.is
12. febrúar 2010 12:18

Hannes Óli Ágústsson

Hannes Óli Ágústsson er leikari og bókmenntafræðingur sem undanfarið hefur farið með leikritið Munaðarlaus landshorna á milli og var nýbúinn að sýna á Akureyri þegar hann svaraði Kistunni. Einhverjir gætu líka kannast við hann úr hlutverki gluggagægisins Sigmundar Davíðs í síðasta áramótaskaupi.

 

Síðasta bók sem hafði áhrif:

Er búinn að vera að lesa ævisögur rokkara og tónlistarmanna upp á síðkastið, þar stendur klárlega upp úr The Dirt, saga Mötley Crüe. Ótrúleg saga af 4 ólíkum vitleysingum sem allir ná einhvern veginn að klúðra lífi sínu og ferli með eiturlyfjum, áfengi og almennum asnaskap. Frábær bók sem allir ættu að lesa, jafnvel þó þeir hafi ekki mikið álit á tónlist Mötley Crüe.

 

Kvikmynd sem snerti taug:

Sá loksins nýlega 4 mánuði, 3 vikur og 2 daga, rúmenska Gullpálmahafann frá 2007. Einstök mynd sem nær að segja svo ótrúlega mikið með litlu. Var einnig hrifinn af kvikmyndun The Road, bókin í miklu uppáhaldi hjá mér og mér fannst myndin ná vel að fanga andrúmsloft hennar. Svo verð ég að nefna heimildamyndina um Anvil, falleg saga af draumóramönnum sem gefast aldrei upp.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?

Ef það væri Hollywood, Philip Seymour Hoffman. Ef bresk, Brendan Gleeson. Ef íslensk...Sigmundur Davíð?

 

Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta?

Bara eitthvað afslappandi, No More Shall We Part með Nick Cave, Fleet Foxes eða Grizzly Bear, jafnvel smá kántrí, Jamey Johnson kemur þá sterkur inn. Annars finnst mér að fólk ætti að ráða því sjálft hvað það hlustar á.

 

Minnistæður kennari:

Úr Háskólanum er það tvímælalaust Árni Bergmann. Ég og Valgeir, vinur minn, fórum í alla tíma sem hann kenndi þegar við vorum þar og við berum enn gríðarlega virðingu fyrir þessum snilling sem gat nær utanbókar þulið upp ótrúlegustu staðreyndir um allar tegundir af bókmenntum. Í LHÍ er það svo Egill Heiðar Anton Pálsson sem er minnistæður, kennari sem hafði gríðarlegt vit á því sem hann kenndi, gat verið ótrúlega harður og brútal, en bar samt alltaf hag nemenda fyrir brjósti.

 

Hvaða lexíu lærðirðu síðast?

Að ef maður vaknar upp frá dauðum eftir að hafa dáið úr of stórum skammti af heróíni þá er ekki góð hugmynd að strjúka af spítalanum til að fá sér meira heróín. Sjá The Dirt ...

 

Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?

Finnst ótrúlegt að fleiri hafi ekki heyrt sænsku söngkonuna Fridu Hyvönen, alveg hreint mögnuð söngkona.

 

Hvar er draumurinn?

Spurðu Stefán Hilmars, nógu lengi hefur hann nú leitað...

 

Ljósmyndari tekur portrett-mynd af þér - hvað væri hinn fullkomni bakgrunnur?

Útsýnið út um stofugluggann heima á Lokastígnum eða Staðarfjallið á Borgarfirði eystra.

 

Gott sparnaðarráð í kreppunni:

Hætta að reykja, fara í sund eða út að hlaupa í staðinn fyrir ræktina og leigja bíómyndir á bókasafninu.

 

Hver er eftirminnilegasta matarminningin?

Úff, þær eru nú margar. Mér er mjög minnisstætt þegar mamma bauð mér heim í höfrung einu sinni, sem bragðaðist mjög vel. Svo eru rugluréttirnir hennar Aðalbjargar, kærustunnar minnar, alltaf jafn frábærir.

 

Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?

Úff, veit ekki...var einu sinni á fylleríi þar sem Gerard Butler var með í för, en hann var ekki fullur þannig að það telst kannski ekki með. Ætli það sé ekki bara Jörundur...

 

Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?

Eyddi honum í vitleysu.

 

Hvaða tónlist hæfir tímunum?

Animal Collective, mátuleg blanda af kaos og harmóníu.

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta