Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 08:32 af www.kistan.is
19. febrúar 2010 10:00

Halla Gunnarsdóttir

Halla Gunnarsdóttir er kona marghöm. Hún er kennari og alþjóðastjórnmálafræðingur, titlar sig sem blaðamann, vann lengi á Mogganum, var aðstoðarkona Ögmundar Jónassonar í heilbrigðisráðuneytinu, er nýgengin í Rithöfundasambandið og með eina viðtalsbók í vinnslu, en áður hefur hún sent frá sér ljóðabókina Leitin að Fjalla-Eyvindi og viðtalsbókina Slæðusviptingar: raddir íranskra kvenna. Þessa dagana situr hún að mestu í Háskóla Íslands og skrifar um öryggis- og varnarmál.

 

Síðasta bók sem hafði áhrif:

Vísur fyrir vonda krakka. Hún fékk mig til að hlæja.

 

Kvikmynd sem snerti taug:

Ég horfi ekki mikið á kvikmyndir en á mér samt eitt endurtekið svar við spurningum af þessu tagi: Bend it Like Beckham. Þá hafði ég horft á íþróttamyndir um stráka alla æskuna en sá svo allt í einu mynd um fótboltastelpur. Ég samsamaði mig algerlega söguhetjunum. Þeirra sigrar urðu mínir sigrar og þeirra sorgir mínar, svona að allri dramatík slepptri…


Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni?
Enginn veit sína ævisögu fyrr en öll er.

 

Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta?
Bara kveikja á Rás 1.

 

Minnistæður kennari:

Þeir eru margir, eða þær öllu heldur. Þyrí Huld Sigurðardóttir kenndi mér í barnaskóla og ég get varla annað en eignað henni heiðurinn af því að ég bæði kann að læra og hef gaman að. Guðlaug Guðsteinsdóttir lamdi mig einu sinni með íslenskri orðabók í hausinn eftir að hafa reynt að fá mig þrjú hundruð sinnum til að hætta að tala í tíma. Hún sagði síðar að það væri ástæðan fyrir því að ég væri vel máli farin. Ingibjörg Axelsdóttir var svo umsjónarkennarinn minn og íslenskukennari í Kvennaskólanum og í miklu eftirlæti. Kannski er engin tilviljun að þessar konur eru allar afburða íslenskukennarar. Þyrí þakka ég líka áhuga minn á stærðfræði, sem á það til að vera dálítið furðulegur.


Hvaða lexíu lærðirðu síðast?
Að fara varlega í fésbókarsamtölum.

 

Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn?
Það hlýtur að vera Askur Ari, 7 ára gamall drengur, sem ég er svo heppin að fá að búa með aðra hvora viku. Ég hef ekki verið svona sannfærð um snilligáfu barns síðan systir mín var lítil.

 

Hvar er draumurinn?

Þarna einhvers staðar með lífinu sem ég þrái.


Ljósmyndari tekur portrett-mynd af þér - hvað væri hinn fullkomni bakgrunnur?

Hafið og fjöllin.


Gott sparnaðarráð í kreppunni:

Leggja bílnum, hjóla og taka strætó. Betra fyrir budduna og geðheilsuna. Annars væri mín almenna ráðlegging að eiga sem minnst og skulda sem minnst.


Hvernig bregstu við ef þú hittir ísbjörn á förnum vegi?

Einhvern tímann var mér sagt að ísbirnir væru örvhentir og eina leiðin til að vinna bug á brjáluðum ísbirni væri því að kýla hann snöggt með vinstri hendinni. Eða voru þeir kannski rétthentir? Alla vega áttu þeir að vera einhentir. Þetta er þó sennilega álíka gáfulegt ráð og að ætla að halda saman kjaftinum á krókódíl.


Hver er eftirminnilegasta matarminningin?
Humarinn sem ég fékk á Æskueyjunni við Kúbu eftir að hafa borðað bragðvond hrísgrjón og baunir með einhverju marglituðu sulli í þrjár vikur.

 

Vinnurðu að bók um ástæður og afleiðingar hrunsins?
Nei. En ég er með svona 5-6 bækur í kollinum. Verst að þær rata sjaldnast þaðan.

 

Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með?
Auður Alfífa Ketilsdóttir. Ég er búin að þekkja hana í bráðum 20 ár en hún kemur mér stöðugt á óvart.

 

Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér?

Já, nei, nei.


Hvaða tónlist hæfir tímunum?
Ég er mjög hrifin af þögn.

 

Hver verða þín fleygu hinstu orð?

Það var, það var …

 


Til baka



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta