| Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 20:45 af www.kistan.is |
26. febrúar 2010 14:06 |
Ingi Björn Guðnason |
|
Síðasta bók sem hafði áhrif: Nokkur almenn orð um kulnun sólar eftir Gyrði Elíasson, hélt fyrir mér vöku marga nóttina í janúar.
Kvikmynd sem snerti taug: Líklega hefur engin kvikmyndaupplifun toppað fyrstu ferð mína í bíó þegar ég fór aðeins tæplega sex ára gamall með móður minni á kvikmyndina Útlagann eftir Ágúst Guðmundsson. Þetta gæti mögulega verið barnaverndarmál, en er vonandi fyrnt. Sennilega hefur senan þar sem sótt er að Gísla í hellinum í Geirþjófsfirði haft djúpstæð áhrif á mig, því næstu vikurnar stökk ég um allt hús með trésverð á lofti æpandi: „Gísli Súrson, við vitum að þú ert þarna inni!“ Kannski er þessi bíóminning mér svona ofarlega í huga núna vegna þess að í september á þessu ári verður haldið námskeið í forníslensku og Gísla sögu hjá okkur í Háskólasetri Vestfjarða. Þegar ég hugsa um nýlega kvikmynd sem „snerti taug“ dettur mér í hug myndin Skjaldbökur geta flogið eftir kúrdísk-íranska leikstjórann Bahman Ghobadi, sem sýnd var á Kvikmyndahátið fyrir nokkrum árum. Frábær mynd sem situr í hausnum enn í hausnum á mér.
Hver leikur aðalhlutverkið í ævisögunni? Einhver með veglegt frekjuskarð.
Hvaða plötu á lesandi að setja á fóninn á meðan hann les þetta? Plötu að eigin vali, ég er lítið fyrir að troða tónlist upp á fólk.
Minnistæður kennari: Tveir kennarar við Fjölbrautaskóla Suðurlands standa uppúr. Árni Blandon sálfræðikennar var duglegur að nýta sér kvikmyndir í kennslunni og opnaði þannig augu manns fyrir mörgum mögnuðum kvikmyndum. Erlingur Brynjólfsson sögukennari er einnig eftirminnilegur, ekki síst vegna þess frábæra andrúmslofts sem skapaðist í tímum hjá honum – það var alltaf gaman í sögu. Þessir tveir kennarar bera eiginlega ábyrgð á því að ég villtist inn á slóðir hugvísinda í Háskólanum. Frá háskólaárunum eru margir minnistæðir. Upp í hugann koma samt strax tveir kennarar vegna þess hve frábæra fyrirlestra þeir héldu. Þetta eru þeir Guðni Elísson og Terry Gunnell sem báðir eru þeim hæfileika gæddir að smita mann af áhuga sínum á efninu. En ég gæti nefnt heila hersingu til viðbótar og satt að segja voru allir kennararnir sem ég nam hjá í HÍ góðir. Þau sem höfðu líklega hvað mest áhrif á hvaða stefnu ég tók í náminu eru samt Bergljót Kristjánsdóttir, Jón Karl Helgason, Ástráður Eysteinsson, Matthías Viðar Sæmundsson og Dagný Kristjánsdóttir.
Hvaða lexíu lærðirðu síðast? Þegar maður býr á Ísafirði og þarf að stóla á flugsamgöngur lærir maður fljótt að pirra sig ekki á því þegar flug fellur niður. Í vikunni fékk ég upprifjun á þessari lexíu. Merkilegasti óuppgötvaði listamaðurinn? Þessi spurning býður upp á útúrsnúning. Sé hann óuppgötvaður þekki ég varla til hans. En Hallur Karl Hinriksson málari er ungur hæfileikaríkur listamaður sem ég hvet fólk til að kynna sér, hið sama gildir um listamanna þríeikið MOMS.
Hvar er draumurinn? Þá sjaldan ég man hann, finnst hann í svefnrofunum. Ljósmyndari tekur portrett-mynd af þér - hvað væri hinn fullkomni bakgrunnur? Fjallahringurinn sem blasir við í 180° frá austri til vesturs í Flóanum. Helst myndi ég kjósa sjónarhorn til austurs með Eyjafjallajökul og Heklu í bakgrunni. Gott sparnaðarráð í kreppunni: Að drullast til að nýta sér þá sjóði sem stéttarfélögin luma á.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: The Wire. Sennilega best skrifaða sjónvarpsefni sem ég hef komist í tæri við.
Hver er eftirminnilegasta matarminningin? Þegar ég smakkaði bufftarta í fyrsta skipti með hrárri eggjarauðu og söxuðum lauk. Satt að segja grét ég nautalundina sem var skafin niður hrá og spanderað í þessi ósköp! Hver er merkilegasti maður sem þú hefur dottið í það með? Fólk hættir yfirleitt að vera sérlega merkilegt eftir fjórða glas.
Hvað gerðirðu við peninginn sem frúin í Hamborg gaf þér? Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísindavefjarins stundar frúin í Hamborg stórtæka alþjóðlega peningasvikamyllu en hefur farið huldu höfði að undanförnu. Það kom mér því í opna skjöldu að fá tilboð um að þiggja peningagjöf frá henni. Þökk sé rannsóknarvinnu Vísindavefjarins var ég vel upplýstur og afþakkaði tilboðið pent og tilkynnti til Ríkislögreglustjóra.
Hvaða tónlist hæfir tímunum? Tónlist nígeríska tónlistarmannsins Fela Kuti.
|